eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

28.12.05

Fóbíur

Ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað það er óheyrilega kúl að vera með einhvers konar fælni. Hvort sem það er Arachnaphobia, Ichthyophobia eða Kolpophobia þá eru fóbíur óheyrilega svalt fyrirbæri. Einn vinur minn er t.d. með mjög sérstaka fælni. Hann getur ekki undir neinum kringumstæðum pissað á almannafæri (talandi um sjúklegan sviðskrekk). Einu sinni vorum við staddir saman á Hróaskeldu og það eru hlandskálar meðfram nánast öllum veggjum. Þar pissuðu allir strákarnir (og sumar stelpurnar) og engum fannst það athugavert. Nema hann vinur minn sem gat engan veginn sætt sig við þá aðstöðu og þurfti því oft að bíða með hinum stelpunum í biðröð eftir því að komast á almennilegt klósett. Það var bara óheyrilega fyndið.

En svo að ég hætti nú að tala um hann vin minn þá vill ég aðeins deila með fólki minni fælni. Mín fælni heitir hinu fallega nafni Coulrophobia og það sem felst í þeirri fælni er sjúkleg fælni við trúða. Ég er kannski ekki með þessa fælni á háu stigi en mér stendur sko alls ekki á sama þegar ég mæti einhverjum af þessum kvikindum. Ég hef lengi spáð í því hvað það er í fari trúða sem skelfir mig svona svakalega og ég get lofað því að það er ekki vegna þess að ég horfði of oft á IT þegar ég var lítill. Og þetta er ekki afþví að ég er búinn að lesa mér of mikið til um John Wayne Gacy. Það sem ég held að sé málið hjá mér er það að þessi helvíti eru með bros málað á andlitið á sér. Maður veit aldrei hvað þessi helvíti eru að hugsa. Þeir gætu verið að skemmta í einhverju barnaafmæli með bros á vör en verið að hugsa um leið að það væri nú gaman að slátra einum kettling fyrir framan börnin, nauðga svo einni mömmunni með einu af creepy blöðrudýrunum sínum, kúka svo á gólfið og velta sér upp úr skítnum. Mynd sem mér finnst lýsa hugsunarhætti trúða mjög vel er meistarastykkið Killer Klowns from outer space, mæli með því að allir horfi á þá mynd og hugsi sig svo tvisvar um áður en þeir hlæi að fíflalátunum í einhverjum trúð. Skilaboð mín eru þessi... ALDREI TREYSTA TRÚÐ!!!!

26.12.05

Jæja þá er þetta jóladæmi að mestu búið og þá geta hlutirnir aftur orðið eðlilegir. Þetta jóladæmi er svo sem fínt en ég er hálf feginn að allt þetta vesen er búið. En jólin voru nokkuð góð annars, eyddum jólunum í sveitinni hjá foreldrum mínum og það var bara mjög þægilegt. Það sem bjargaði alveg jólunum var einkum tvennt. Í fyrsta lagi þá komst ég í jólafótboltann sem klikkaði í fyrra. Manni finnst einhvern veginn ekki vera komin jól nema að maður ná að sparka í tuðru á aðfangadagsmorgun.


Hitt atriðið sem bjargaði jólunum voru hvolparnir. Þannig er mál með vexti að í september fæddust 7 hvolpar í sveitinni. 5 þeirra eru búnir að finna heimili en tveir, Skuggi og Pjakkur, hanga ennþá í sveitinni. Pjakkur er búinn að finna varanlegt heimili í sveitinni en Skugga vantar heimili. Þannig að ef það er einhver sem vill fá síðbúna jólagjöf í formi hvolps getur sá hinn sami haft samband við mig!

21.12.05

Shop Smart, shop S-Mart!

Ég var búinn að skrifa langa færslu um það afhverju ég væri ekki í jólaskapi og hvernig ég ætlaði að reyna að bæta úr því en vegna einhvers helvítis klúðurs þá skilaði sú færsla sér ekki. Því er ég núna fúll og ætla að láta þetta nægja.

Gluggagægir var perri af verstu sort,
Með hugsanir fúlar á við risa lort,
Á gluggum hann hékk nætur langar,
Og horfði á vinnukonurnar svangar.

Eina nótt sá kallinn mikla hópreið,
Og rúnkaði sér svo fast að undan sveið,
En gáði ekki að sér og við glugga fraus,
Með risa standpínu og buxna laus.

19.12.05

jæja er ekki kominn tími á að skrifa eitthvað annað heldur en klámvísur á þessa blessuðu síðu. Ég kíkti á dag (eins og flesta aðra daga) á B2.is í dag og sá þá merkilegan link þar sem verið var að linka beint inn á rifrildi milli einhvers Eyvindar og Gillzeneggers. Eftir að hafa lesið þetta hugsaði ég um leið til þeirrar yndislegu myndar sem Daði birti á síðunni sinni á daginn með textanum: "Arguing on the internet is like running in the special olympics.... even if you win, you´re retarded." Ég skil bara ekki hvernig einhver maður lætur detta sér það í hug að reyna að standa í þroskuðum samræðum (eða rifrildi) við einhvern af kallarnir.is. Ég hugsa að ég gæti haldið uppi gáfulegri samræðum við eldhússtólana mína. En þar sem að ég ætla ekki að eiga það á hættu að vera kallaður "trefill" ætla ég ekki að segja neitt illt um þetta ágæta fólk. Það er samt eitt sem ég er ekki að skilja og það er eftirfarandi: "Hvernig maður er trefill?" Ég veit að trefill er eitthvað sem þú setur um hálsinn á þér þegar það er kalt og að það var sérlegur sendiboði noregskonungs á þjóðveldisöld sem hét einmitt Trefill. Mér þætti vænt um að ef einhver veit hver skilgreiningin á trefli er, þá muni sá hinn sami leyfa mér að heyra þessa skemmtilegu skilgreiningu.

hmm eitthvað annað......

Gummi er að koma heim... gaman gaman. Það verður vissulega gaman að fá að sjá danska dverginn milli jóla og nýárs og ekki verður það verra að fá að sjá Björgvin líka. Ég vona bara að menn standi við stóru orðin og tekið verði hressilega á því. En plís ekki keilu.. ekki nema að að Gummi komi svo í karókí og syngi Dancing Queen með Abba fullum hálsi! Ef að ég fæ loforð um að það gerist mun ég mæta í g-streng á næsta fyllerí Júragarðs drengjanna!

Hurðaskellir var merkilegur jólasveinn,
Sem kom til byggða alveg einn,
Þar vildi hann fá hinn fullkomna drátt,
Hjá konu sem hafði helst sem hátt.

Hann fann bóndafrúna og á hana rauk,
Og hamaðist á henni þar til yfir lauk,
Þá leit hann á hana og sagði blítt,
“nú ertu með eyðni, það er nýtt!”


Næstu nótt mætti ófétið hann Skyrgámur,
Sem af landadrykkju var orðinn soldið rámur,
Hann kom til byggða með miklum látum,
Og olli ótta hjá bæði hnokkum og hnátum.

Hann upp í til fólks um nætur skreið,
Og sofandi bændum í bossann reið,
Eftir það tók hreingerningaræði völdin,
Og hann þurrkaði skaufann í gluggatjöldin.


Bjúgnakrækir kom næst með skærin stór,
Hann hafði engan tíma fyrir tafir né slór,
Með skærin uppi ruddist hann inn á bað,
Fann stærsta typpið og klippti það af.

Með hnossið sitt hann hljóp aftur til fjalla,
Þar sem hann hitta hina jólasveinanna alla,
Hann stoltur sýndi sinn nýja feng
“næsta ár tek ég af 12 ára dreng!”

18.12.05

Næstur var askasleikir, sá var mikill massi,
En karlgreyið var háður bæði krakki og hassi,
og þar sem jólasveinar eiga sjaldan aur,
varð sveinki að selja sig, 100 kr. gleðigaur.

Í dimmum skotum hann sinnti öllum,
Bæði feitum konum og sveittum köllum,
Hann saug og sleikti ósköpin öll,
Og eyddi svo jólunum í stórri krakk höll.

15.12.05

Próf og loðinkjammi.

Jæja.... þá er loksins þetta prófakjaftæði yfirstaðið og ég get farið að reyna að stilla af svefninn aftur. Það er líklega ekki af hinu góða til lengdar að ná 2-4 klukkustunda svefni á nóttu. En hey, ég er ennþá uppistandandi og ennþá tík svo að ég ætla ekkert að kvarta. Það sem hefur verið merkilegast hjá mér undanfarið fyrir utan próflestur og klámvísu keppni við Ástu, þá er það án efa hin unaðslega stund sem við Daði áttum saman í dimmum sal. Ég verð að viðurkenni að fyrirfram hafði ég miklar væntingar en hann olli sko alls engum vonbrigðum. Ég hafði ímyndað mér að hann væri stór en hann var svo stór og loðinn að ég get varla lýst því. Rúmum þremur klukkutímum síðar gengum við Daði út sáttir en mjög þreyttir. Þetta er kvöldstund sem við munum líklega seint gleyma.

en ekki meira í bili....
V

eh... ég var búinn að minnast á að við Daði fórum að sjá King Kong var það ekki??

Jóla hvað???


Þvörusleikir næst í byggðanna skreið,
þar sem risa stór þvara sveinka beið,
hann þvöruna greip og stökk inn í fjós,
þarsem hjá kúnum logaði veikt kertaljós.

Með þvöru að vopni í flórinn hann rauk,
og ferskan kúaskít með hendinni strauk,
svo át hann skítinn á skammri stund,
og sletti í mjólkurpottinn pínu brund.


Pottasleikir var skrýtinn gamall kall,
sem safnaði lýsi í stóran, ljótan dall,
um sveitir hann flakkaði á milli bæja,
og reyndi við bæði gellur og gæja

Er náði hann í gaur, upp í fjöll hann tældi,
og gaf honum vín þar til hann drapst eða ældi,
Því sveinki vildi hafa eitthvað fyrir stefni,
og lýsið er ódýrt og afbragðs sleipiefni.

13.12.05

Stúfur hét sá þriðji, furðulegur fýr,
í bleikum blúndubrókum, ógeðslega hýr,
hann kom á sveitabæinn í góðri trú og von,
að þessi jól hann kæmist upp á bóndason.

En bóndasonur vild ei, þiggja jólasvein,
og frá Stúfi heyrðist einmanna greddu vein,
hann braust því í búrið og fann sér pínu bús,
og nauðgaði síðan kettinum, fyrir aftan hús

Son of Kong

Jæja... nú fer að styttast í að ég eigi stefnumót við risaapann Kong og ég er bara orðinn þó nokkuð spenntur. Ég ætla nú samt að passa mig á því að gera mér ekki of miklar væntingar svo að ég verði ekki fyrir vonbrigðum. Er samt ekki að sjá hvernig stór snillingurinn Peter Jackson ætti að geta klikkað. Hann hefur vart slegið feilnótu frá því að hann byrjaði að gera kvikmyndir og vill ég benda öllum á að sjá meistarastykkið Meet the Feebles sem hafa ekki séð hana nú þegar.

En samt er það merkilegt að um leið og einn loðinn api mætir til landsins, fer annar af landi brott. Já litli loðinbakurinn hann Emmi minn er bara að fara að stinga af til Las Vegas til þess að eyða jólunum í höfuðborg vændiskvenna, fjárhættuspila og neonljósa. Miðað við fyrri kynni mín af honum Emma tel ég það nokkuð ljóst að hann noti tækifærið á meðan hann er úti og gifti sig í drive-thru kapellu. Vona bara að hann giftist ekki samferðakonu sinni, nema að hann vilji í raun og veru vera frú Áki Pain.

En eins og vitur maður sagði einu sinni:"Það er ekki eftir neinu að bíða, en bíðum samt aðeins lengur!"

12.12.05

Jólin eru að koma

Stekkjarstaur kom fyrstur, pervertinn sá,
á búfénað hann lagðist og riðlaðist honum á,
og eftir að hafa kelað við nokkur rollugrey,
hann skoppaði inn í hlöðu og skeit í bóndans hey.

11.12.05

Dagur hinna miklu tíðinda

Dagurinn í gær var dagur þar sem bókstaflega allt var að gerast. Fyrst af öllu ber að geta ótímabærs fráfalls www.maristars.com sem dó drottni sínum í gær. Getgátur eru uppi um ástæður þessa dauðsfalls, opinber skýring er ónýtur server en grunur leikur á að gestaaðgangurinn hennar Freyju hafi þvingað síðuna til þess að taka sitt eigið líf. Síðan lætur eftir sig tvo eftirlifandi aðstandendur, Ástu og Maríu Pétursdætur, og bið ég guð að styrkja þær í þessari miklu sorg.
Þetta var því miður ekki eina dauðsfallið í gær. Stór snillingurinn Richard Pryor lést í gær af völdum hjartaáfalls. Hann var nú búinn að vera eitthvað veikur lengi kall greyið en samt finnst mér hann hafa farið of snemma. Það er alltaf sagt að þeir sem guðirnir elska deyi ungir.... eh... þannig að hann fer líklega til helvítis kallgreyið. Enda held ég að Richard kallinn muni bara sóma sér vel í helvíti hjá öllum hinum snillingum.

Og já svo var einhver íslensk stelpa að vinna Miss World keppnina.. húrra.

10.12.05

Laugardagurinn langi

Why, for the love of god WHY????? Afhverju í ósköpunum bauðst ég til þess að vinna á laugardegi? Ég sem hef'ði getað verið að gera svo margt annað eins og t.d. að reyna að vinna úr öllum komplexunum hans Daða eða að reyna að skilja afhverju er ekki löngu búið að reka Björgvin úr Bónus (miðað við allt það magn af ódýru brúnkukremi sem maðurinn stelur frá þeim).
En í staðinn sit ég við símann og fylgist með öllum gíra sig upp í djammið. Sem betur fer hef ég minn trausta PSP til að stytta mér stundir milli símtala. Hérna mun ég svo dúsa til kl.23 í kvöld og ég mun snappa ef að einhver af helv.... vinnufélögunum hringir inn til þess eins að vera sniðugur.
En ég nenni þessu ekki lengur..... peace out!

8.12.05

Ást við fyrstu sýn!

Ok ég játa það að ég er leikja nörd og mér er bara alveg sama. Ég var að fá PSP tölvuna mína í hendurnar núna rétt áðan og tilfinningarnar sem eru innra með mér eru mjög blendnar. Mér líður svona eins og mér leið þegar ég sá nakin kvenmannsbrjóst í fyrsta sinn face-to face(réttara sagt face-to-chest). Fyrst um sinn þá horfði ég bara á PSP-inn og þorði varla að snerta hana. Var hræddur um að mínir skítugu puttar væru ekki þess verðugir að snerta þessa tæknilegu fullkomnun. Svo prófaði ég að snerta hana mjúklega og snertingin ein var næg til að sælu hrollur fór um minn þybbna skrokk. Svo prófaði ég að kveikja á þessari elsku og þá brustu allar flóðgáttir og ég grét eins og lítil skólastelpa sem á ekki fyrir sígarettum.

Það eina sem ég þarf að gera núna er að reyna að komast heim úr vinnunni svo að ég geti farið að kanna hvern einasta fersentimetra á þessu guðdómlega apparati. Eins og ég segi... ég er nörd en þetta er ást við fyrstu sýn!

7.12.05

Stór ákvörðun

ég hef tekið stóra ákvörðun. Í samráði við sálfræðinginn minn (sem ég birti mynd af fyrir stuttu síðan) hef ég ákveðið að hætta að haga mér eins og lítil tík og einnig hef ég ákveðið á hætta að hlusta á skynsemisrök og gera það sem mig langar að gera. Í þeim tilgangi hef ég gert lista af hlutum sem ég hef gefið mér eitt ár til að ljúka. Ef ég næ ekki að klára þennan lista fyrir næstu áramót (2006/2007) mun ég sætta mig við hlutskipti mitt sem tík og mun hætta að kvarta undan því að vera kallaður tík. Þar sem fyrstu tveir liðirnir þola ekki dagsins ljós mun ég bara telja upp liði 3-10.

1.xxxxxxxx
2.xxxxxxxx
3. Fara til útlanda (alveg sama hvert svo lengi sem ég þarf að tala annað tungumál en íslensku, færeyjar og grænland koma alveg til greina)
4. Fá mér annað tattoo
5. Prófa snjóbretti (helst í brekku en sætti mig við jafnsléttu)
6. Safna kjarki og senda bókina mína til útgefanda.
7. Útskrifast úr Háskólanum
8. Komast á tónleika með Deftones, Manson, Slipknot, Sigur-rós eða U2 (veit... soldið ólíkar hljómsveitir)
9. Ekki fara í ljós
10. Kaupa mér PS3 (ef hún kemur út innan árs)

Nú er bara að fara að X-a hlutina smátt og smátt af listanum!

5.12.05

Tjelling!!!!

Hvað er það í fari mínu sem hefur þær afleiðingar að fólk kýs að kalla mig kellingu (eða eins og sumar mannvitsbrekkur segja Tjelling). Þetta áreiti hefur aukist gífurlega upp á síðkastið og hef ég í kjölfarið af því þurft að leita mér sérfræðingsaðstoðar. Fann mér þennan fína sála sem að mér líður mjög vel nálægt. Læt hér fylgja með mynd af honum og smá brot úr síðasta tíma okkar.

V: Mér er bara farið að líða mjög illa yfir því að vera alltaf kallaður kelling!
Dr: Og afhverju líður þér illa yfir því að vera kallaður kelling?
V: Afþví að ég tel mig vera karlmann.
Dr:Og afhverju telurðu þig vera karlmann?
V:Afþví að ég hef ýmisleg líkamleg líffæri sem flokka mig sem karlmann en ekki konu.
Dr:Og afhverju telurðu þig vera með ýmisleg líkamleg líffæri sem flokka þig sem karlmann en ekki konu?
V:Eh.... ertu bara að taka orð mín og umorða þau sem spurningar?
Dr:Æ, komdu hingað vinan og sestu í kjöltuna á mér.
V:Og hvað á það að leysa???
Dr:Þegiðu kelling og sestu í kjöltuna á mér!!!!

Sem sagt vel heppnaður tími hjá sálfræðingnum mínum. Sé sko ekkert eftir því að peningarnir mínir fari í það að byggja nýjan sumarbústað í Skorradalnum fyrir þennan snilling. Ég er alveg viss að með tímanum mun þessi ágæti maður hjálpa mér að finna karlmennsku mína.... eða afmeyja mig!

Halelúja!!!

Ég er búinn að finna guð! Reyndar merkilegt hvernig ég virðist alltaf finna hann á sama tíma, c.a. í kringum prófin! Þetta er svo merkilegt.... allt árið er ég svo gott sem guðleysingi en svo um leið og prófin byrja fer ég niður á hnén í bljúgri bæn. Spurning hvort að það sé ekki frekar skynsamlegra að læra vel yfir alla önnina og vera klár þegar prófin byrja heldur en að biðja til æðri máttarvalda fyrir hvert einasta próf. Reyndar er ég alveg viss um það að ég er ekki eini nemandinn við HÍ sem hefur þennan sið í kringum prófin.
En anyway... guð er góður. Ég er alveg búinn að sjá það... hann er að minnsta kosti að bænheyra mig á hverri einustu önn. Ég vil nú meina að ítrekuð góðverk mín spili þar eitthvað inn í, ég t.d. stoppa alltaf til að hleypa gömlum konum yfir götuna og reyni alltaf að keyra ekki á kettina sem labba í veg fyrir bílinn minn.
En þar sem klukkan er núna að nálgast 2 og næsta próf hefst eftir ca. 8 klukkustundir er kominn tími til þess að ég biðji. Trúaðir og námsmenn geta tekið undir:
"Kæri Guð,
Ég vill biðja á því að þakka þér fyrir góða matinn sem ég fékk í dag. Upphitaðir afgangar eru einmitt uppáhaldið mitt. En það sem ég vildi ræða við þig núna eru prófin mín. Ég veit að ég sagði á seinustu önn að ég myndi verða duglegri að læra núna en ég get ekki að þessu gert. Málið er nefnilega það að ég fékk flís í augað sem olli því að ég gat ekki lesið sem skyldi. Þar sem ég er fórnarlamb aðstæðna bið ég þig um að bjarga mér í gegnum þessi próf og ég lofa svo að standa mig betur á næstu önn!"