eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

5.3.07

Helvítis blogspot

Shit, hvað er komið langt síðan ég hef bloggað. Það er líklega tilkomið vegna þess að bloggið er ekki að þýðast mig heima fyrir og því verð ég að blogga í vinnunni. Það kemur bara mjög sjaldan tími til þess og því hefur bloggið setið á hakanum svo lengi.

Ég er sífellt að lenda í því að fólk segist vera að leita að nafninu mínu í Blaðinu til að lesa skrif mín, sumir halda jafnvel að ég sé hættur þar því nafnið mitt sést aldrei. Málið er bara það að allt sem ég skrifa er nafnlaust (enda megnið af því bara sori og því er það bara gott að nafn mitt skuli ekki bendlað við það.)

Ég vildi óska þess að ég hefði eitthvað sniðugt og úthugsað til að deila með ykkur en svo er ekki. Ég get hinsvegar glatt tölvunörda vini mína að ég er búinn að ganga frá kaupum á PS3 og geta því áhugasamir haft samband við mig um miðja næstu viku og fengið að kíkja í heimsókn til að berja alla dýrðina augum.

Gaman Gaman

5 Comments:

At 09:15, Blogger Gummi said...

Fáum við bara að skoða hana?

 
At 19:19, Blogger Garðar said...

ég skal koma með myndavélina mína Gummi... þá getum við bara farið heim til mín næst og skoðað myndirnar þar

 
At 14:49, Blogger Gummi said...

oh I can´t wait!

 
At 11:01, Anonymous Anonymous said...

Fólk eins og þú á ekki að fá að eiga blogg.

 
At 22:27, Blogger Garðar said...

úh úh úh... ég sá hana um helgina. Damn, gleymdi að taka mynd. Gummi, við verðum bara að kíkja í heimsókn til kallsins. Sigrún saknar okkur líka og að sjálfsögðu söknum við hennar

 

Post a Comment

<< Home