Oh It´s on!
Mér finnst vegið að þeim litla heiðri sem ég á eftir í síðustu vísunni henna Ástu. Ég veit að ég er tilfinninganæmur náungi með kvenlega rödd en ég grenja þó sjaldan... það koma kannski stundum tár en það er bara vegna þess að tárakirtlarnir mínir munu vera eitthvað fönkí.
Stekkjarstaur stirði var heljarinnar flón,
hann kleip í alla rassa og sendi dóna tón,
enginn bossi var hólpinn fyrir sveinka höndum,
rassafíkn sveinka var komin úr öllum böndum.
Í Hafnarfirði var ein snót sem angaði sem prump,
því sveinki vildi bara skítalykt og stærðarinnar gump,
en er sveinki mætti í fjörðinn var sorgin stór,
því stúlkan var í Köben, að læra og drýgja hór.
Á flugvöll sveinki skellti sér og keypti rándýrt far,
til Köben skyldi fara, því Ásta bjó víst þar,
á Strikinu fann hann stúlkuna á hamborgarastað,
þau hugi felldu saman og fóru í drullubað.
Þau búa nú víst saman í háum himnasal,
og sauðfé saman stela úr íðilfögrum dal,
en dýrin aldrei þau éta, það væri algjör synd,
því ekkert er betra í trekant en gömul, kollótt kind.


6 Comments:
Hahahahahaha..... þessi er góð!!!
En hún mamma les síðuna mína þannig að ég "þurfti" að draga úr öllu svona tali.
Kannski ég taki bara Møbíusinn fyrir næst ?
Ert þú með heiður?
eða á maður heiður?
eh.... slurpí görpí.... drullaðu þeir bara heim melur svo þú getir komið og spilað alla þessa tölvuleiki með mér!
Ókei við skulum gera okkur grein fyrir því að melur er líka höfundarréttarvarinn! Ég og Ásta erum melir og enginn annar.
Thú ert ad tapa bigtime!!!
Hvar í fjandanum eru vísurnar thínar?
Å
Post a Comment
<< Home