Oj bara ullabjakk.....
Í vinnunni um daginn fékk ég það áhugaverða verkefni að fjalla lítillega um vetrardagskrá sjónvarpsstöðvanna. Við fyrstu sýn virkaði það spennandi en svo þegar ég fór að skoða þetta nánar uppgötvaði ég það að þetta er bara hreinasti viðbjóður. Það er nefnilega voðalega lítið til sem heitir innlend dagskrárgerð. Nær allir "íslenskir" þættir sem eru sýndir í sjónvarpi eru íslenskar útfærslur á erlendum þáttum.
Tökum nokkur dæmi:
X-factor. Það er ótrúlegt hvað fólk nennir endalaust að gera þætti sem reyna að finna fólk sem getur sungið. Mesta gamanið hjá mér er að hlægja að laglausa fólkinu sem gerir sig að fífli þarna eða slær þá í gegn. Ég vil meina að af öllum þeim þátttakendum sem hafa tekið þátt í þessum söngkjaftæðisþáttum þá séu bara tveir einstaklingar í öllum heiminum sem hafa slegið í gegn. William Hung og Ottó!
Tekinn. Þetta er eitt mesta ripoff sem ég hef séð í sjónvarpi og þetta er verra en japönsk útgáfa af friends þar sem allir vinirnir hittast á sushi bar í staðinn fyrir kaffihús. Hann Auddi hefur gjörsamlega stolið öllu varðandi hönnun þess þáttar og meira að segja innskotinn sem koma með honum í þættinum eru höfð svarthvít eins og hjá fíflinu honum Ashton Kutcher.
Frægir í form. Þarf ekkert að segja um þann þátt en ég bíð bara eftir því að Árni Johnsen kýli Þorgrím Þráinsson því hann á það fyllilega skilið.
Eitt sem kannski er vert að benda á líka en það er hinn óstöðvandi (og greinilega ódrepandi ) Hemmi Gunn. Ég sver það, þessi maður er eins kakkalakki, alveg sama hversu oft er traðkað á honum. Það er alveg sama hvað þessi maður kemur nálægt þessa daganna, það virðist vera dautt í fæðingu.
Ég held að það væri ráð að slá allri þessari vitleysu saman í einn þátt. Þar myndi Hemmi Gunn stjórna keppni í fjöldasöng á meðan að keppendur reyna að losa sig við aukakílóin. Auddi gæti svo verið þarna og reynt að hrekkja fólk eitthvað á meðan það er að syngja.


12 Comments:
I believe you´re on to something there!
Hemmi hefur reyndar drepist í einhverjar mínútur (held 8 en ætla ekki að fullyrða það þó).
Tekinn er keyptur (innan sviga stolinn) en já, frekar slappt hjá honum. Ekki mjög frumlegir hrekkir og hann bara ekki mikið að stýra þessu.
Ég legg til að lesendur "V - Verðandi vitleysingur í versandi veröld" hjálpi honum aðeins og komi með "scoop" hérna á síðuna. Eitthvað fréttnæmt og láta hann vita frekar en að einhvern sextugur fréttakall á morgunblaðinu eigni sér heiðurinn.
Verst að The Shield var að klárast á Stöð 2. Hefðir getað skrifað heilan greinaflokk um það.
Held ad thad væri réttast ad CXL-a bara alla thessa thætti og sýna Bond myndir 24-7!
úhh´úhhúhhúh Gummi!
Ég og Daði förum á heimsfrumsýninguna á föstudaginn, vííííhhhh....!!!!
Ég hef hvorki heyrt um né séð einn af þessum þáttum... þýðir það þá að ég sé formlega orðin "útlendingur" ?
Þeir hljóma samt allir hræðilega.
Já maður spyr sig hvar eru íslensk frumlegheit? Ja ekki í sjónvarpi svo mikið er víst. Nota bene þá er engin af þessum þáttum sen þú nefndir á stöðinni sem við neyðumst til að borga af.
Viggó, ég skynja biturleika. Þig langar bara að syngja nógu vel til að geta tekið þátt í X-factor, vera nógu frægur til að vera tekinn og skokka með Gauja litla.
Það sér hver maður í gegnum þetta. ;)
Ásta: Þú ert útlendingur og treystu mér ástandið er svo slæmt!
Esther: Ég er ekki bitur, ég hef fengið minn skref af frægð fyrir að syngja fyrir framan fólk (lék einu sinni aðalhlutverk í söngleik og ég er þó vita laglaus)
Gummi: Sammála með að sýna Bond 24/7, farðu nú að drulla þér heim!
Garðar: Ég treysti á það að þið vinir mínir sem lesið þetta látið mig vita um leið og eitthvað juicy kemur upp... og BTW ég er líka að fara á Bond á föstudaginn EN ég þarf ekki að borga krónu fyrir það!
Bogga mín: RÚV er gjörsamlega að skíta á sig varðandi dagskrárgerð, ég hef amk lítinn áhuga á því að horfa á Jónas Sen fjalla um klassíska tónlist.
Og svona smá til ykkar allra..... hvernig væri nú að allir þessir creative vinir sem ég á myndu taka höndum saman og koma með eitthvað nýtt, spennandi íslenskt sjónvarpsefni. Ég meina Gummi og Garðar eru báðir búnir með kvikmyndaskólann og Garðar er meira að segja að vinna í þessum bransa. Ásta er viðundur en hún er samt creative og það er gott að vinna með henni(að minnsta kosti stopmotion). Að því ólgleymdu að hún er í kvikmyndanámi.
Svo getum við fengið Ottó til að ýta á REC og STOP takkann þegar verið er að taka upp.
Þetta er "killer" hópur og svo veit ég að tilfinninga Daði sjálfur getur lagt margt til málanna!
Jahá. Það á sumsé ekki að leyfa mér að vera með? Ég er ekki nógu kríeitiv?
Ég viðundur??
Ég veit að ég er undur... en kommon, er við ekki soldið harkalegt, þú ert bara viðHundur!!
Er einmitt að reyna að selja sjónvarpsþáttahugmynd til skjásins ;)
Hann heitir "Hjálpsamir Íslendingar".
Esther: Sorry, ég hefði átt að telja þig með.... þú getur verið afbragðs prófarkarlesari:)
Ásta: Ég ætla ekki að ræða þetta mál við þig aftur!
Garðar:Hmmm... hvað með hjálpsama Pólverja? Eru þeir ekki nógu merkilegir til að fá sinn eigin þátt???
Post a Comment
<< Home