Ég hlakka svo til.....
Ég skil núna hvað stelpan átti við í jólalaginu þegar hún söng hástöfum "Ég hlakka svo til......". Í þessu lagi var stúlkunni hugleikið hvað tíminn var lengi að líða þegar hún var að bíða eftir jólunum. Yfir sumartímann þá var þetta ekkert vandamál en þegar líða fór nær jólum fór klukkan nánast að ganga afturábak. Ef ég man textann rétt þá var hann einhvern veginn svona:"Sumar það er satt, þá leið hér tíminn skelfing hratt, og þeir flugu hjá í snatri, já fuglarnir og sólin. En nú er þetta breytt, það bara gerist ekki neitt...."
Nú er ég ekki að segja að ég sé farinn að bíða eftir jólunum (en ég hlakka samt til þeirra, enda MIKIÐ jólabarn) en ég skil núna mun betur hvað átt er við í þessu lagi. Nú er ég að bíða eftir því að starfsdögum mínum hjá Símanum ljúki og ég sver það... tíminn hefur aldrei liðið jafn hægt!!!
Hingað til hef ég reynt að vera góður starfsmaður því mér finnst að maður eigi alltaf að gefa sig 100% í vinnuna, jafnvel þótt að þú hatir hana útaf lífinu. Ég verð að játa það að þessa síðustu daga (eiginlega alveg frá því að ég vissi að ég hefði fengið vinnuna hjá Blaðinu) þá hef ég aðeins slakað á klónni. Ég er í sannleika sagt orðinn hundleiður á því að hreinsa upp klúðrið eftir misheimska starfsmenn Símans. Margir starfsmenn Símans eru mjög klárir en því miður eru líka nokkrir sem ég myndi ekki treysta fyrir poka af þvagi.
En svo að ég víki aftur að aðalefninu þá er tíminn þessa dagana óþægilega lengi að líða. Ég lít á klukkuna á 10 mínútna fresti og þess á mili andvarpa ég og læt mig dreyma um hetjudáðir manna á borð við Bob Woodward. Ég geri mér alveg grein fyrir því að starf blaðamannsins er ekki sveipað neinum dýrðarljóma... en djöfull get ég ekki beðið eftir því að skipta um starf.


4 Comments:
Kíkir svo bara reglulega á bloggið mitt og færð efnivið í greinar. haha
Skil þig svo vel!
Já Anna mín... þú munt verða "my muse"... þannig séð.
Gummi við erum sálufélagar og mér er skapi næst að flytja til DK til að geta notið samvista við þig. Losaðu þig bara við Siggu
Ég hélt alltaf að hún segði Snati en ekki snatri... ég skildi heldur aldrei hvað Snati kom málinu við.
Post a Comment
<< Home