eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

13.9.06

Þurrkatíð á enda???

Jæja.. loksins kom að því. Eftir langa bið eftir því að fá einhver atvinnutilboð þá létti loksins til í gær þegar haft var samband við mig og ég boðaður í atvinnuviðtal. Ég fór í viðtal í dag og ég held að þetta hafi gengið bara ágætlega, ég tileinkaði mér orð Estherar (Fake it till you make it) og reyndi að blása mig eins mikið upp í viðtalinu og mér er mögulegt.

En sem sagt, þetta viðtal var hjá Blaðinu og ef allt fer á besta veg mun ég verða blaðamaður á þeim ágæta fjölmiðli. Enn er of snemmt að gera sér einhverjar vonir en ég myndi vissulega hafa mjög gaman af því að komast inn í hinn "harða" heim blaðamennskunnar.

En ég sé fram á það að ef ég fæ þessa vinnu mun ég rúnta á milli híbýla vina og ættingja og eiga aðeins við merkingar á póstkössum. Mér finnst a.m.k. alveg merkilega margir vera með merkingar á póstkössunum sem stendur á. "Ekki Blaðið!" Það mun ekki ganga ef ég fer að skrifa æsifréttir þar.

En að lokum vil ég vitna í gamalt áramótaskaup þar sem þetta orðatiltæki á vel við núna.
"Það er ekki eftir neinu að bíða..... en bíðum samt aðeins lengur"

Krossleggið fingurna

9 Comments:

At 19:07, Anonymous Anonymous said...

Krosslagði tærnar líka;)

 
At 02:35, Anonymous Anonymous said...

Það gæti alveg verið að ég myndi taka miðann af bréfalúgunni minni ef þú skyldir fá vinnuna:)
Allt fyrir þig,þú ert nú einu sinni uppáhalds mágur minn(sá eini)

 
At 07:37, Blogger Esther said...

Viggó, hvernig væri eiginlega líf þitt ef ég væri ekki hérna til að ala þig upp? ;)

Ég hef fulla trú á því að þú neglir þetta djobb beibí, en þú verður þá að lofa að láta dreifingardeildina fara að senda þennan snepil austur á landi.

 
At 09:46, Blogger Gummi said...

Good on ya mate!

 
At 13:56, Blogger V said...

Það er amk deginum ljósara að með mig innanborðs myndi lesendum snepilsins fjölga mikið!

 
At 11:50, Blogger Gummi said...

all the luck to ya!

 
At 12:14, Blogger V said...

Þúsund þakkir Guðmundur...

 
At 19:06, Anonymous Anonymous said...

Hvað ertu að segja, hefur fólk eitthvað á móti blaðinu? Ég býst við miklu af þér við prófarkalestur, ég gleymi því ekki þegar ég las fyrirsögn nokkra svo hljóðandi: "Brad Pitt og Tom Cruise í eina sæng"... ég bjóst við heitu kynlífi en nei, þeir ætluðu bara að vinna saman! Það voru vonbrigði ársins...

 
At 21:22, Blogger V said...

Spurning hvort að þetta hafi ekki frekar verið óstjórnleg óskhyggja heldur en málfarsvilla?

 

Post a Comment

<< Home