Heppnasti maður í heimi!!!!
Ég verð að segja það að ég er stundum alveg einstaklega heppinn. Athugið að þetta er kaldhæðni. Þannig er það nefnilega með mig að ég á stundum til að segja réttu hlutina á alveg kolvitlausum tíma! Eins og þegar ég spurði eina stelpu sem ég þekkti hvort að gengi ekki allt vel með meðgönguna og hvort hún væri bara alltaf að fitna, daginn eftir að hún missti fóstrið! Það datt engum í hug að segja mér frá því að hún væri búinn að missa fóstrið!
Ég lenti einmitt í svona stöðu um helgina. Þannig var að ég var á djamminu með vinnufélögum mínum og ég þurfti að nota símann hjá einum af þeim til að spjalla við vin minn. Eftir að símtalinu lauk þá sá ég að skjáhvílan á símanum hans var mynd af kærustunni hans. Þá sagði ég eitthvað á þá leið að hann væri alltaf svo ástfanginn en fékk bara í staðinn svarið "Þegiðu Viggó!" Ég var ekki alveg að skilja þetta svar en þar sem ég var fullur þá skipti það ekki svo miklu máli. Þetta samtal átti sér stað í leigubílnum á leiðinni niður í bæ og einhverra hluta vegna þá hvarf félaginn mjög fljótlega eftir að niður í bæ var komið. Það var ekki fyrr en þá að mér var tjáð það að gaurinn hafi verið að enda við að slíta sambandi við kærustuna! Þá allt í einu skyldi ég viðbrögðin hjá honum og ég skammaðist mín.
Í dag er ég á bömmer og er hálfpartinn að vona að gaurinn hringi sig inn veikann......
Eins og ég segi..... stundum er ég orðheppnasti maður í heimi!


16 Comments:
Þú hefur nú alltaf verið soddan ræfill.
jebb...ég er cool gaur!
Jahh, ég var nú ekki beint gáfuleg heldur þegar ég sagði honum Bergvini mínum "afi minn missti einu sinni tönn - söguna" og komst að því að þetta var afi hans líka, ekki bara afi Dóru. :/
HAHAHAHA... alveg rétt! Það var alveg óeðlilega fyndið. Bergvin tók þessu þó ekkert illa... ekki eins og dömpaði gaurinn og ekki-lengur-ólétt stelpan sem ég var að minnast á.
Hehehe, nei reyndar. Þú vinnur - þitt var verra :)
Annars sagði Inga Sif mér í gær, æsispennt, frá því að hún hafi rekist á Dóru í bænum um daginn. Í grænni peysu. Ekki þeirri sömu samt. (Ég er alltaf fyrst með fréttirnar - ég veit!)
Mig rámar nú í að Daði hafi átt svipað móment með Dóru, hans Davíðs. Klappaði á magann hennar og óskaði henni til hamingju með óléttuna rétt eftir að hún hafði misst fóstur. Auðvitað var það vandræðalegt en hvernig í fjandanum átti hann að vita að hún væri ekki lengur ólétt??! Það er ekkert sem að fólk auglýsir, annað en að vera ólétt/ur. Mér finnst allavega ótrúlega tæpt að fólki sé kennt um svona bjánasetningar þegar það hafði ekkert nema good intention in mind...
Þú allavega varst ekkert að láta mig vita af því....
Fréttastofa Gumma - Svona næstum því fyrstir með fréttirnar.
Ég segi þeim sem nenna að hlusta á einhvern annan en sjálfan sig....
Það er svipað dæmi með mig Gummi... nema ég segi öllum en enginn nennir að hlusta á mig
I don't get it. Hlusta ég bara á sjálfan mig og engan annan?
nah, mér fannst þetta bara spök setning :D
You sir. Are an....
Spakur?
Nuts...he guessed it.
Úje! eða öllu heldur újats!
Ertu dainn Viggo? Eg er alveg ad koma heim, thu matt ekki deyja strax!
Post a Comment
<< Home