eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

23.6.06

The next stage in evolution???

Mér finnst ég sífellt vera að heyra þessa setningu sem pirrar mig meira en allt annað:"Karlmenn eru svo einfaldir!" Þessari staðhæfingu get ég bara ekki verið sammála, ég vil meina að karlmenn séu bara nákvæmlega eins og þeir eiga að vera en konur eru bara of flóknar.
Konur segja gjarnan:"Það eina sem karlmenn þurfa til að vera hamingjusamir er matur og kynlíf og þá eru þeir vel settir!" Þessu er ég algjörlega sammála.

Málið er nefnilega það að við mannfólkið (homo sapiens) erum dýr, háþróuð kannski en dýr engu að síður. Öll dýr hafa sínar grunnþarfir, þ.e. að næra sig, fjölga sér og að verja sig og ungviði sín ef hætta steðjar að. Þetta er allt og sumt, þetta er í raun kjarni lífsins. Svoleiðis hefur það alltaf verið og svoleiðis ætti það alltaf að vera. Aldrei í jarðsögunni hefur einhver apafrú krafist þess af karlkyns apa að hann taki tillit til tilfinninga hennar. Ég er líka nokkuð viss um það að aldrei hefur kvenkyns bænabeiða (praying mantis) orðið skúffuð af því að karldýrið skynjaði ekki að hún væri fúl af því að hann tók ekki eftir drullunni sem hafði safnast saman á greininni þeirra. Það sem meira er að þær dýrategundir sem maka sig fyrir lífstíð eru sárafáar, a.m.k. miðað við fjölda dýrategunda á þessari jörð. Mörgæsir eru meðal þeirra dýrategunda sem halda sig við sama maka alla ævi en flestar aðrar dýrategundir velja sér maka eftir hentisemi (þ.e.a.s. hver er við höndina).

Núna hins vegar erum við að verða vitni að því að ný ráðandi dýrategund er að brjótast fram á hinn ægilega vígvöll sem við köllum lífið. Þetta er dýrategund sem ég hef kosið að skíra Homo Acerbus (áhugasamir geta flett upp þýðingunni á latneska orðinu Acerbus) en flestir aðrir kjósa að nefna þessa dýrategund.... konu. Þessi dýrategund hafnar öllum reglum sem dýraríkið hefur sett fram og kýs að búa sér til nýjar reglur sem eiga að yfirfærast yfir á allar aðrar dýrategundir, og þá sérstaklega yfir á Homo Sapiens. Skyndilega skulu hugsanir verða lesnar, mökun skal gilda fyrir lífstíð og tilfinningar Homo Acerbus skulu ávallt vera í fyrsta sæti. Auðvitað þarf ekki að taka það fram að þær dýrategundir sem fylgja ekki eftir þessum nýju náttúrulögmálum Homo Acerbus eru samstundis dæmdar einfaldar og þar af leiðandi vanþróaðar. Ég vil meina að þessi nýja dýrategund sé ekkert annað en bara stökkbreyting á Homo Sapiens. Svona eins og aumingja barnið sem fæddist með 3 hendur eða Wayne Rooney (sem ég held reyndar að sé þróunarstökk afturábak, með sterkum keim af Homo Erectus). Sem betur fer þá hafa bæði Homo Sapiens og Homo Acerbus tekið vísindi upp á sína arma og tel ég því að fyrst það er hægt að fjarlægja eina tegund stökkbreytingar (t.d. aukahöndina á barninu) þá hljóta læknavísindin að geta fjarlægt þessa stökkbreytingu úr Homo Acerbus svo að við getum öll aftur orðið Homo Sapiens.

Þið megið samt ekki misskilja mig og halda því fram að ég sé einhver karlremba sem vill bara hafa konur inni í eldhúsinu eða á bakinu (eða einhverri annarri stellingu) í svefnherberginu. Ég er algjörlega fylgjandi jafnrétti og öllu sem því fylgir. Ég vil bara gera lífið einfalt aftur.... eins og það á að vera!

5 Comments:

At 16:12, Blogger Gummi said...

Heyr heyr!

 
At 17:59, Anonymous Anonymous said...

öss öss !!!
(hef of mikið að segja um þetta og ég kem því varla fyrir hér. Ég hef því ákveðið að svara þér á gamla (einfalda) mátan ... með penna og nokkrum blöðum. Þú átt von á þungu bréfi í póstinum á næstu dögum)

 
At 18:01, Anonymous Anonymous said...

OG... hvar eru myndirnar hennar Dagmarar ... ég fer að missa þolinmæðina fljótlega

Stattu þig strákur!

 
At 20:01, Anonymous Anonymous said...

Viggo minn... eg aetti ad vita ad thu tharft ast meira en allt annad (kannski gengurdu fyrir mat, kynlifi og ast) en eg vil engu ad sidur meina thad ad eg se einstaklega einfold og ad strakarnir seu their sem bua til vandamalin. Thu ert i ruglinu.

 
At 08:32, Blogger V said...

jæja... ég ætla þá að bíða spenntur eftir bréfinu frá þér Lilja og þegar ég hef fengið það bréf í hendurnar mun ég setja restina af myndunum frá Dagmar inn á netið.

Og Freyja mín.... það er vísindalega sannað að ást er ekkert annað en skammhlaup í heilanum sem veldur því að við fáum þessa sterku ástartilfinningu. Ást og umhyggja eru fyrirbæri sem hafa verið sköpuð í þeim tilgangi að selja blóm, hjartalagaða konfekt kassa og krúttleg kort. Ást er óþarfi (kannski voðalega þægilegt fyrirbæri en óþarfi engu að síður). Ég er ekki í ruglinu, samfélagið og Homo Acerbus eru það.

 

Post a Comment

<< Home