eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

29.5.06

Vanhæfur.....

Ég hef undanfarna daga verið í mjög mikilli naflaskoðun. Ég er nefnilega búinn að átta mig á því að ég stend um þessar mundir á miklum krossgötum. Undanfarin 20 ár (svona grófleg ágiskun) hef ég verið námsmaður, ég hef ráðið mig í störf undir þeim formerkjum að ég er námsmaður og ég hef alltaf vitað framhaldið hjá mér..... aftur í skóla til að læra meira. Núna hinsvegar sé ég fram á breytingar og ég veit ekki hvort að ég sé reiðubúinn til að taka það skref. Ég lít í kringum mig og sé alls staðar fólk sem er með sína stefnu á hreinu. Raggi fór í smiðinn á sínum tíma og það er hans thing (enda helvíti fær á því sviði, a.m.k. klikkar ekki smiðsaugað hjá honum þegar það þarf að tilkynna mér að hillur séu skakkar). Maggi er stjórnmálafræðingur af bestu gerð enda er sá maður ekki hæfur til neins annars en að rífa kjaft.

Það sem ég er að átta mig á hins vegar er það að ég er ekki hæfur til neins. Ég hef á mínum langa námsferli ekki náð að tileinka mér neitt sem myndi gera mig ómissandi í augum tilvonandi vinnuveitenda. Það yrði kaldur dagur í helvíti þegar ÍSTAK myndi sleppa klónum af Ragga og Maggi mun ganga inn í hvaða starf sem er að námi loknu (enda í stífum æfingarbúðum fyrir bláa herinn hjá Morgunblaðinu). Ég hins vegar kann ekki neitt!!!! Ég er í gjörsamlega VONLAUSU starfi sem ég þó get ekki sleppt fyrr en ég hef aðra vinnu í bakhöndinni, ég eins og allir aðrir þarfnast peninga til að geta lifað. Málið er bara það að engum vantar sagnfræðing með mikinn áhuga (og smá grunnmenntun) á fjölmiðlun.

Ég var engan veginn nógu klár fyrir MBL (sem segir mikið um greindarmuninn á okkur Magnúsi) og ég efast stórlega um að Umhverfisráðuneytið setji sig í samband við mig. En ég er samt harður á því að það forskot sem Maggi hefur á mig af vitsmunum, jafnist út þegar litið er á holdafar og innri fegurð (við erum nú báðir enginn Brad Pitt)

Það sem ég er að gera um þessar mundir er hreinlega að leita eftir kraftaverki. Ég er með allar klær úti og ég vona heitt og innilega að ég muni finna eitthvað annað starf fljótlega því ég er farinn að mygla í mínu núverandi starfi.

En nú ætla ég að hætta þessu áður en ég fer að halla mér að flöskunni. Alcohol makes the voices stop!

5 Comments:

At 10:20, Blogger Sveinsson said...

Þú mátt fara að skila Alien myndunum.

 
At 11:40, Blogger Gummi said...

Svo er líka alltaf gott að ljúga í atvinnuviðtölum...you´ll pick it up!

 
At 12:57, Anonymous Anonymous said...

Eg var farin ad halda ad thu vaerir dainn... veit ekki hvort mer lidur eitthvad betur eftir thessa lesningu!

 
At 23:09, Blogger Esther said...

Viggó minn, ég er hjartanlega sammála Magnúsi nokkrum sem hér ritar; skella saman CV-i og byrja að senda e-mail, hringja og dúkka upp. Öðruvísi færðu ekkert nema einhver djobb sem þig langar takmarkað eða ekkert í (trúlega af því að engan langar í þau). Maður fær ekkert ókeypis en eitt CV og smotterís eftirfylgni er nú Bónusverð fyrir skemmtilegt og vellaunað starf.

Ef þú ert ekki viss um í hverju þú átt að vera, þá velurðu bara það sem þér finnst skemmtilegast og tekur frasann "feik itt till jú meik itt" upp í bili. Þá kemur þetta allt saman. Þessi frasi er allavega að nýtast mér ágætlega þessa dagana! :)

BTW ...ég er svoleiðis að farast úr hamingju í þessu nýja starfi mínu so far. Það er eins og einhver hafi sest niður með mitt breiða og undarlega áhugasvið og pússlað saman djobbi úr því. Tóm gleði!

Og nú ferð þú og finnur þitt ...kannski alveg óvart! Go, go, go!

 
At 00:05, Anonymous Anonymous said...

Eða hver veit nema þú verðir leirbrúðusnillingur eftir sumarið ha!! Og jafnvel leikmyndasnillingur í kaupbæti!

Ég er búnað tala við mömmu og hún er geim að koma úr bílskúrnum. Og ég er geim að byrja á herlegheitunum þegar ég kem frá the big B, sem verður 06.06.06..... og þá hugsar þú eflaust "einmitt... djöfullinn sjálfur mættur"

Og var ég ekki búnað nefna eitthvað við þig í sambandi við sjálfsvorkunnaráráttuna þína?

 

Post a Comment

<< Home