eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

23.4.06

Gleðilegt sumar..... my ASS!!!

Hvað í andskotanum er eiginlega að fólki??? Hvaða heilvita manneskju dettur það í hug að halda upp á sumardaginn fyrsta um hávetur.... ég meina sumardagurinn fyrsti var á fimmtudaginn og síðan þá eru búnir að vera a.m.k. tveir (ef ekki þrír) dagar þar sem hefur verið haglél... HAGLÉL!!! Ekki slydda eða rigning heldur HAGLÉL!!!! Svo þegar ég vaknaði í morgun var hvít jörð.... við höldum upp á snjólaus jól en svo þegar sumarið á að vera komið þá verður allt hvítara heldur en félagsfundur hjá félagi þjóðernissinna. Svo er í lögunum einhver fáránleg klausa sem segir til um það að eftir einhvern ákveðinn dag þarftu að vera búinn að taka nagladekkin undan bílnum.... annars þarftu að borga sekt..... 5000 kall á hvert dekk!! Síðast þegar ég vissi þá var veðráttan óháð lagabókstafnum og því finnst mér fáránlegt að segja það að eftir einhvern ákveðinn dag þá máttu ekki vera með nagladekk undir bíldruslunni.
VÁ hvað ég er pirraður!

En eg vil nota þetta tækifæri til að þakka öllum þeim fjölmörgu vinum mínum sem sáu sér fært að mæta á málþingið í gær. Mér leið mjög vel að vita af ykkur öllum þarna og það sýndi mér greinilega hvað ég á marga góða vini og vinkonur! Ég var hreinlega með tárin í augunum af gleði yfir þeim gríðarlega stuðning sem mér var sýndur.

V

3 Comments:

At 19:32, Anonymous Anonymous said...

Viggo minn, i somu logum stendur ad seu adstaedur slikar (semsagt skitavedur) tha ma madur hafa nagladekkin lengur.

 
At 07:47, Blogger Gummi said...

það er spáð sól og 20 stiga hita hjá mér á morgun...

Þú veist að ég hefði komið hefðirðu borgað undir mig flugfarið!

 
At 09:30, Blogger V said...

Treystu mér Gummi, ef ég ætti pening fyrir flugfari til Danmerkur þá væri það fyrir minn feita rass en ekki þinn loðna gump.

Freyja... well DUH! Skemmtilegt svona fólk sem reynir að vera rödd skynseminnar þegar maður er pirraður.

 

Post a Comment

<< Home