Langur tími, enginn sjór.....
Jæja, nú held ég að það sé kominn tími til að aflétta þessu andleysi sem hefur legið yfir manni síðastliðna viku og reyna að blogga eitthvað smá. Ég er alltaf að sjá það betur og betur að þetta veðurlag á Íslandi er eitthvað sem hentar mér engan veginn. Ég er svona gaur sem þarf aðeins hlýrra loftslag heldur en skítkalt og blautara en miðaldra kona á Tom Jones tónleikum. Spurningin er bara, hvar er best fyrir mig að vera. Ég hef alltaf verið frekar veikur fyrir Bandaríkjunum en það er kannski bara vegna þess að ég er veikur fyrir Twinkies (ég veit, þetta er ógeðslegt fæði en ég fíla það einhverra hluta vegna). Einnig hef ég alltaf verið veikur fyrir Galapagos eyjum en það er þá líka bara útaf skjaldbökunum (ég er veikur fyrir hlutum sem eru eldri og meira hægfara heldur en ég). En sá staður sem ég hef alltaf verið að spá mikið í og langar mikið til að skoða og jafnvel setjast að á eru Azor eyjar en ég hef heyrt að séu bara algjör paradís. Þar á hitastigið að vera mjög þægilegt (ekki of heitt en alls ekki kalt) og fasteignaverðið er víst bara algjör brandari þar sem þessi staður er ekki búinn að lenda í því helvíti að vera flokkaður sem einhver tískustaður.
En þá er það bara spurning hvort að ég muni fá einhverja vinnu á Azor eyjunum, kannski að þeim bráðvanti lata sagnfræðimenntaða menn sem eru vanir að brytja niður frosinn rabbabara, tæma ruslatunnur og að svara í síma!
Ef allt annað klikkar mun ég flytja til Danmerkur og reyna þar fyrir mér sem gigóló á dvalarheimilum og sambýlum!


5 Comments:
Ja Azor eyjar eru ekki vitlaus valkostur. En ég hef frekar Maldiveyjar ofar á listanum mínum. Þar er enn heitar! Þú verður bara að flýta þér þá, þær fara líklegast á kaf eftir einhvern tíma líkt og er að gerast í Alaska.
Þar er hægt að kafa og skoða fiska og kóral, skelltu þér þangað gamli... gott fyrir heilsuna :)
Þú getur náttlega alltaf farið til Írak og unnið sem æfingaskotmark.
Ég veit.. þetta var ljótt.. skamm skamm Ásta.
Ásta.... Þú ert illskan uppmáluð! Björgvin... ég veit ekki hvað er official tungumálið á Azoreyjum en ég tel hæpið að það sé Azoríska. Myndi frekar giska á portúgölsku eða ensku.
Inga.... ég þarf greinilega að skoða Maldiveyjar betur en það má samt ekki vera of heitt þarna, ég nenni ekki að svitna eins barnaníðingur í barnaafmæli!
Ég kem allavega og heimsæki þig á Azor eyjum... sannaðu bara til, þegar þú ert fluttur af landinu og enginn nennir að þekkja þig þá verð ég á endanum konan í lífi þinu sem elskar þig heitast... af öllum þessum konum!
mér finnst ótrúlegt að björgvin sem hefur örugglega ekki(allavega ekki ég) vitað um Azor áður en samt veit hann hvað er official tungumálið þar en ekki þú Viggó, held að þessir spænsku tímar þínir hafi farið til einskis :)
Post a Comment
<< Home