Home sweet Gnome....
Jæja þá er maður kominn heim frá landi lýðræðis (ahem) og jafnréttis (hóst hóst) og ég verð bara að segja að þessi ferð fór alveg fram úr björtustu vonum mínum. Þar sem ég þekkti ekki eitt einasta grey sem ég fór með þá gerði ég mér ekkert rosalega miklar vonir um félagsskapinn... ég er alveg rosalega ánægður með það hvað ég hafði mikið rangt fyrir mér. Nánast hver einasta manneskja í þessari ferð var snillingur... (en hver þó á sinn hátt). Best var þó manneskjan sem er gjörsamlega málhölt á tveimur tungumálum en ég vill ekki nefna nein nöfn.
Þar sem ég er bundinn þagnarskyldu varðandi einstaka atburði ferðarinnar þá mun ég ekki fara út í nein af sóðalegu smáatriðunum en ég vill þó segja það að ég hefði aldrei getað trúað því að það væri svona gott að kúra með öðrum karlmanni heldur en Daða.
Ég set kannski einhvern tímann inn einhverjar myndir á netið en eins og málin standa núna þá nenni ég því engan veginn þar sem flest allar myndirnar mínar eru annað hvort af flugvélum eða húsum og minnismerkjum (og svo reyndar ca. 60 myndir af mér og ferðafélögunum í annarlegu ástandi).
En já... ferðin var góð og með tímanum mun hún eflaust verða enn betri í minningunni (svona þegar maður er búinn að melta einstaka atburði aðeins betur)
En að lokum vill ég segja að það er gott að vera kominn heim en ég get samt ekki beðið eftir því að komast aftur til útlanda... mér var bent á blaðamannaskóla í Köben sem væri kannski þess virði að skoða nánar... kannski að maður geti bara flúið land innan árs í skjóli æðri menntunar.
V


12 Comments:
Ætlaru að sérhæfa þig í æsifréttamensku?
This comment has been removed by a blog administrator.
Er ritskoðun í gangi?
Þú ert svo mikil hermikráka að... nei, ég ætla ekki að segja það.
út með það ásta! hver var ritskoðaður?
Það kom hérna inn einhver náungi sem dirfðist að tala illa um hann Gumma minn.... sagði eitthvað um að hann stundaði kynlíf með búfénaði og alls konar ósiðlegar athafnir með uppblásnum dúkkum. Ég vildi ekki láta svoleiðis sora standa á síðunni minni!
Gott að koma heim my ass... það er aldrei gott að koma heim! Nema maður búi í útlöndum og ætli þangað aftur mjög fljótlega... fjandans klakadrusla.
Freyja..ástin mín eina. Hvernig hefurðu það?
Ef ég segi það þá hafið þið ekkert að ímynda ykkur...
Ég er ekki búinn að sjá eina einustu rollu síðan ég kom hingað út....vonbrigði!
Ertu að leita? Langar mig að vita hvers vegna?
já og nei...eða var það nei og já?? Svona, ÚT MEÐ ÞAÐ ÁSTA!!!
Post a Comment
<< Home