eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

23.2.06

Hjálp!

Ég er orðinn leiður á því að viðskiptavinir mínir standi í þeirri trú að ég sé kona! Ég þoli ekki lengur að heyra í símanum:"Já vinan!" eða "allt í lagi, ljúfan!" Þess vegna lýsi ég eftir einhverri leið til að breyta röddinni minni þannig að hún hljómi karlmannslegri. Þetta er án gríns farið að vera VIRKILEGA pirrandi. Ok ég veit að ég er ekki með einhverja rosalega macho rödd en for crying out loud ég hljóma ekki eins og kelling (Ási, vinsamlegast haltu þínum skoðunum útaf fyrir þig á þessu tiltekna málefni!). Ég er án gríns farinn að örvænta, mér finnst eins og karlmennska mín fari minnkandi með hverju símtalinu sem líður þar sem kúnninn stendur í þeirri trú að ég sé kona. Ef fram fer sem horfir þá mun ég enda á því að troða sandpappír ofan í kok á mér í þeirri veiku von að ég fái svona Clint Eastwood kúrekarödd. Ef það klikkar mun ég þamba heilt gallon af Acetoni í þeirri veiku von að það muni hafa tilætluð áhrif. Þetta er í alvörunni farið að leggjast þungt á sálarlífið hjá mér og mun ég á endanum liggja nakinn í fósturstellingunni í hrúgu af mínum eigin saur og sjúga þumalputtann!

8 Comments:

At 13:02, Blogger Gummi said...

Ég veit ekki hvort að ég sé með einhvað karmannlegri rödd en þú, en ef svo þá hafa líklega reykingar og stöðug drykkja fært mér hana.
Held að Camel filterslaus pakki á dag ásamt 3 viskíglösum ætti pottþétt að gefa Clint Eastwood hreim.

 
At 16:25, Blogger V said...

ach so..... ég ætti kannski bara að byrja að reykja? Ég hef alltaf verið að velta mér hvort að ég yrði vinsælli ef að ég myndi fara að reykja.

 
At 11:36, Blogger Gummi said...

Þú verður kannski ekki vinsælli en það var gerð skemmtileg könnun hérna í DK um daginn...kom í ljós að það fólk sem reykti skemmti sér mun betur í vinnunni heldur en fólk sem reykti ekki. Miklu meira hlegið og skemmt sér. Kom meira að segja í ljós að stundum sóttust nonsmoking fólk eftir því að vera hjá reykingafólkinu...

 
At 11:47, Blogger Garðar said...

Ekki misskilja mig því ég er viss um að planið þitt mun virka Gummi en hér er aðeins fljótlegri leið. Ekki bara aðeins, miklu fljótlegri leið.

http://www.download.com/AV-Voice-Changer-Software-Diamond-Edition/3000-2168_4-10502361.html?tag=lst-0-4

 
At 11:47, Blogger Garðar said...

http://www.download.com/AV-Voice-
Changer-Software-Diamond-Edition/
3000-2168_4-10502361.html?tag=lst-0-4

kannski betra svona...

 
At 12:04, Blogger Gummi said...

http://mbl.is/mm/frettir/frett.
html?nid=1187146

 
At 17:33, Blogger V said...

Ái Magnús, Ái! Nú getur þú bara setið einn eftir í borgarnes bollu klúbbnum!!!!!

 
At 21:48, Anonymous Anonymous said...

Ég hef heyrt því fleygt að sterar hafi þau áhrif á kvenfólk að rödd þeirra verður dýpri og þeim vex typpi.

Þannig að.. Viggó, þetta er bara win win situation...

 

Post a Comment

<< Home