eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

5.1.06

Bloggið mitt.

hef ákveðið héðan í frá að halda nákvæma dagbók um líf mitt. Þessi dagbók verður bloggsíðan mín. Ég ætla að byrja í dag.

06.55 - Vakna eftir 4 klst. svefn og nenni ekki framúr rúminu.
07.05 - Skríð loksins úr rúminu.
07.20-07.30 - slæst við soninn að klæða hann í fötin svo að ég geti skutlað honum í leikskólann.
07.45 - Búinn að koma barninu í leikskólann, fær mér í vörina og keyri í vinnuna.
07.55 - kem í vinnuna, kveiki á tölvunni og þykist vera að vinna.
08.32 - eftir að hafa þóst vinna í hálftíma fer ég til að ná mér í vatnsglas. Tek mér 10 mínútur í það verk því ég vill fá vatnið í visst kalt.
09.06 - fer inn á fatlaðra klósett til að skíta, tek með mér símann minn ef einhver skyldi hringja í mig. Gaman að tala í símann og skíta um leið. Losa úr vörinni eftir að ég sturta niður.
09.24 - Les Moggann og DV á netinu á meðan ég þykist vinna.
09.50 - Fer í 20 mín. pásu.
10.20 - Þykist vinna á meðan ég skoða bloggsíður hjá vinum og kunningjum.
11.15 - Fer að vinna.
11.30 - Matartími.

Þar sem að ég er ekki búinn að gera meira í dag ætla ég ekki að hafa dagbókina lengri í dag... meira síðar

9 Comments:

At 16:32, Blogger Gummi said...

wów...vannstu í korter? Það er ábyggilega meira en Daði..

 
At 16:44, Blogger V said...

eflaust helmingi meira

 
At 00:15, Anonymous Anonymous said...

Það má ekki gleyma erfiðinu að koma drengnum í fötin! Eða er það inní korterinu?

 
At 00:18, Blogger V said...

það er á gráu svæði... erfiðis vinna en fæ ekkert borgað fyrir það!

 
At 01:46, Anonymous Anonymous said...

Manstu það sem við vorum að ræða um daginn um bloggleyfin? Þú gætir misst þitt ef þú tekur þig ekki á...

 
At 12:42, Anonymous Anonymous said...

já þú lifir spennandi lífi þykir mér!!

 
At 13:17, Blogger Sveinsson said...

Var einhver að kalla?

 
At 18:13, Blogger Gummi said...

híhí

 
At 21:01, Blogger Sveinsson said...

Hey Eva. Eigum við að fara að leggja undirbúning að því að byrja saman?

 

Post a Comment

<< Home