eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

19.12.05

jæja er ekki kominn tími á að skrifa eitthvað annað heldur en klámvísur á þessa blessuðu síðu. Ég kíkti á dag (eins og flesta aðra daga) á B2.is í dag og sá þá merkilegan link þar sem verið var að linka beint inn á rifrildi milli einhvers Eyvindar og Gillzeneggers. Eftir að hafa lesið þetta hugsaði ég um leið til þeirrar yndislegu myndar sem Daði birti á síðunni sinni á daginn með textanum: "Arguing on the internet is like running in the special olympics.... even if you win, you´re retarded." Ég skil bara ekki hvernig einhver maður lætur detta sér það í hug að reyna að standa í þroskuðum samræðum (eða rifrildi) við einhvern af kallarnir.is. Ég hugsa að ég gæti haldið uppi gáfulegri samræðum við eldhússtólana mína. En þar sem að ég ætla ekki að eiga það á hættu að vera kallaður "trefill" ætla ég ekki að segja neitt illt um þetta ágæta fólk. Það er samt eitt sem ég er ekki að skilja og það er eftirfarandi: "Hvernig maður er trefill?" Ég veit að trefill er eitthvað sem þú setur um hálsinn á þér þegar það er kalt og að það var sérlegur sendiboði noregskonungs á þjóðveldisöld sem hét einmitt Trefill. Mér þætti vænt um að ef einhver veit hver skilgreiningin á trefli er, þá muni sá hinn sami leyfa mér að heyra þessa skemmtilegu skilgreiningu.

hmm eitthvað annað......

Gummi er að koma heim... gaman gaman. Það verður vissulega gaman að fá að sjá danska dverginn milli jóla og nýárs og ekki verður það verra að fá að sjá Björgvin líka. Ég vona bara að menn standi við stóru orðin og tekið verði hressilega á því. En plís ekki keilu.. ekki nema að að Gummi komi svo í karókí og syngi Dancing Queen með Abba fullum hálsi! Ef að ég fæ loforð um að það gerist mun ég mæta í g-streng á næsta fyllerí Júragarðs drengjanna!

18 Comments:

At 23:52, Anonymous Anonymous said...

Doooh... þú getur nú ekki talað illa um hann Ómar okkar... trefill!

 
At 00:08, Blogger V said...

gæti ekki verið meira sama um hann Ómar okkar.. þekki gaurinn ekkert... spurning frekar með hann Hjört minn... það er reyndar ekki hægt að ræða við hann um neitt nema framsóknarflokkinn.

 
At 00:51, Anonymous Anonymous said...

Ég held að framsóknarflokkurinn teljist hvorki kúl hjá treflum né hnökkum... né bændum eða afgreiðslukonum eða húsmæðrum eða bara nokkrum lifandi manni yfirleitt.
(Er ég að lýsa yfir stríði?)

 
At 05:39, Blogger Gummi said...

Ég er alveg til í að "taka hressilega á því", þó ég muni nú reyndar ekki eftir að hafa sagt það ;)
Ég stakk nú bara upp á keilu til að stinga upp á einhverju, sé ykkur ekki vera að koma með betri hugmyndir(karókí er ekki hugmynd).
Þessir "kallar" eru réttdræpir! Þori að veðja að þegar þeir eru heima hjá sér, sitja þeir naktir og klæða púðluhundinn sinn upp í búninga!

 
At 12:35, Blogger V said...

ég vill nú bara stinga upp á fylleríi... langt síðan að við höfum hrunið í það saman drengirnir. Hvað varðar Kallanna þá veit ég ekki alveg hvað það er sem heldur þeim gangandi (annað heldur en enormous EGO). Vissulega eru þeir ekki allir jafn heiladauðir en samt er hópurinn sem slíkur frekar ..... spes!

 
At 12:50, Anonymous Anonymous said...

Stinga upp á fyllerí og beila svo á síðustu stundu eins og þér er einum lagið?

 
At 13:53, Blogger Gummi said...

hahahaha....ég get nú sagt þér það, freyja, að síðast þegar hann kom á fyllerí með okkur lét hann sækja sig 10 mín. fyrir miðnætti!
Þannig að ef það á að vera eitthvað vit í þessu núna, verður þú, viggó minn, að senda Sigrúnu og Barða bara út úr húsi og við hittumst heima hjá þér!?!?

 
At 15:00, Blogger V said...

Þetta er bara bull og vitleysa Gummi minn! Síðast þegar ég datt í það með ykkur þá endaði ég í Krossinum með svipuför á bakinu!!!! Ég er enginn bail-ari!!! Man ekki betur en að Freyja hafi klikkað líka á þessu tiltekna djammi!

 
At 16:56, Blogger Gummi said...

Ég held að þú sért að rugla saman gummum, eða eitthvað.
"Man ekki betur en að Freyja hafi klikkað líka á þessu tiltekna djammi!" ...ég man ekki betur en að hún hafi nú bara ekki verið boðin...? Held líka að ég viti bara ekkert hver Freyja er???
Þú svaraðir mér samt ekki um það hvort þú ætlar að vera maður og henda konu þinni og barni út á gaddinn fyrir mig?

 
At 17:41, Blogger V said...

Það er nú ýmislegt sem ég geri fyrir þig Gummi minn!

 
At 19:10, Blogger Gummi said...

víííííí :) þá er það ákveðið!

 
At 20:41, Blogger Sveinsson said...

Okay. Vonandi er þetta ekki of erfitt fyrir Viggó.

Ætlarðu að halda partý?

Og hvernig væri nú að svara annaðhvort "já" eða "nei" í stað þess að skrifa eitthvað moð sem þýðir ekki neitt.

 
At 22:53, Anonymous Anonymous said...

Já þar hefurðu það Viggó, ég var ekkert boðin og það veit enginn hver ég er! Kannski er ég bara ekkert til... ég er Mangi... og þú ert Einar Áskell og party pooper af guðs náð.

 
At 00:34, Anonymous Anonymous said...

Bíddu, voru menn að nefna Hjört égætlaífjórðasætiðíKópavogihjáFramsóknenendaðiísextándaeðaþvíumlíkt?

 
At 00:57, Blogger V said...

verð... að ... svara.. öllum!
Gummi og Daði: Nei ég ætla ekki að halda partý heima hjá mér. Ég legg ekki í það að hleypa Björgvin fullum heim til mín. Ég man enn hvernig fræga ferðin okkar á vilibráðarkvöldið í Mývatnssveit endaði forðum daga þar sem við stálum öllu steini léttara og sumir brutu öll ljós sem hann gat fundið!
Freyja: Ef ég myndi halda partý þá yrði þér auðvitað boðið, ég er bara ekki viss að þér myndi líða vel innan um þessi furðudýr sem við félagahópurinn erum.
Sindri: Já við erum að tala um þann mikla pólitíska snilling Hjört Sveinsson sem ég ber svo mikla virðingu fyrir að ég tók þátt í opnu prófkjöri fyrir framsókn bara til að geta sett hann í fjórða sætið. Leið á eftir eins og ég hefði selt djöflinum sál mína!

 
At 12:33, Blogger Gummi said...

wanker...

 
At 18:37, Blogger Sveinsson said...

Doubble wanker.

 
At 18:37, Blogger Sveinsson said...

Double jafnvel.

 

Post a Comment

<< Home