eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

13.12.05

Son of Kong

Jæja... nú fer að styttast í að ég eigi stefnumót við risaapann Kong og ég er bara orðinn þó nokkuð spenntur. Ég ætla nú samt að passa mig á því að gera mér ekki of miklar væntingar svo að ég verði ekki fyrir vonbrigðum. Er samt ekki að sjá hvernig stór snillingurinn Peter Jackson ætti að geta klikkað. Hann hefur vart slegið feilnótu frá því að hann byrjaði að gera kvikmyndir og vill ég benda öllum á að sjá meistarastykkið Meet the Feebles sem hafa ekki séð hana nú þegar.

En samt er það merkilegt að um leið og einn loðinn api mætir til landsins, fer annar af landi brott. Já litli loðinbakurinn hann Emmi minn er bara að fara að stinga af til Las Vegas til þess að eyða jólunum í höfuðborg vændiskvenna, fjárhættuspila og neonljósa. Miðað við fyrri kynni mín af honum Emma tel ég það nokkuð ljóst að hann noti tækifærið á meðan hann er úti og gifti sig í drive-thru kapellu. Vona bara að hann giftist ekki samferðakonu sinni, nema að hann vilji í raun og veru vera frú Áki Pain.

En eins og vitur maður sagði einu sinni:"Það er ekki eftir neinu að bíða, en bíðum samt aðeins lengur!"

2 Comments:

At 09:33, Blogger Gummi said...

Hvað er það nákvæmlega sem gerir þig svona spenntan fyrir King Kong? Sagan? Tæknibrellurnar? Almenn spenna yfir að sjá apa? Do tell, af því að ég er forvitinn og kem líklega ekki til með að fara á þessa mynd...

 
At 09:54, Blogger V said...

það sem gerir mig spenntann er það að sitja með Daða í myrkinu í ca. 3 klukkutíma. Svo er apinn líka soldið hot!

 

Post a Comment

<< Home