Dagur hinna miklu tíðinda
Dagurinn í gær var dagur þar sem bókstaflega allt var að gerast. Fyrst af öllu ber að geta ótímabærs fráfalls www.maristars.com sem dó drottni sínum í gær. Getgátur eru uppi um ástæður þessa dauðsfalls, opinber skýring er ónýtur server en grunur leikur á að gestaaðgangurinn hennar Freyju hafi þvingað síðuna til þess að taka sitt eigið líf. Síðan lætur eftir sig tvo eftirlifandi aðstandendur, Ástu og Maríu Pétursdætur, og bið ég guð að styrkja þær í þessari miklu sorg.
Þetta var því miður ekki eina dauðsfallið í gær. Stór snillingurinn Richard Pryor lést í gær af völdum hjartaáfalls. Hann var nú búinn að vera eitthvað veikur lengi kall greyið en samt finnst mér hann hafa farið of snemma. Það er alltaf sagt að þeir sem guðirnir elska deyi ungir.... eh... þannig að hann fer líklega til helvítis kallgreyið. Enda held ég að Richard kallinn muni bara sóma sér vel í helvíti hjá öllum hinum snillingum.Og já svo var einhver íslensk stelpa að vinna Miss World keppnina.. húrra.


8 Comments:
Mér finnst ekki við hæfi að tala um andlát hinnar göfugu síðu www.maristars.com (ég tala nú ekki um remúlaðið) og einhverja rotna fegurðarkeppni í sömu færslu! Sýndu nú smá háttvísi!
Dam...Richard farinn...he was dirty...
Háttvísi er orð sem ekki er til í mínum orðaforða. Ekki frekar en sanngirni, hreinskilni og blygðunarkennd!
Hefði svosem getað sagt mér það sjálf...
www.maristars.com sucks...!
Unnur Birna rules...!
Hey já...til hamingju Unnur Birna fyrir að hafa unnið keppni í því hver fæddist fallegust! ekkert smá mikið afrek! Hetjan mín! Hafðir mikið fyrir því að..uh..vera þarna.
Unnur Birna sucks, Richard Pryor NEIIII, heimurinn er óréttlátur!
Mér skildist á fyrrverandi hennar Unnar að hún sökkaði einmitt ekki neitt. Skil því ekki hvernig hún gat unnið.... ég hélt að það væri partur af hæfileikakeppninni!
Post a Comment
<< Home