eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

5.12.05

Halelúja!!!

Ég er búinn að finna guð! Reyndar merkilegt hvernig ég virðist alltaf finna hann á sama tíma, c.a. í kringum prófin! Þetta er svo merkilegt.... allt árið er ég svo gott sem guðleysingi en svo um leið og prófin byrja fer ég niður á hnén í bljúgri bæn. Spurning hvort að það sé ekki frekar skynsamlegra að læra vel yfir alla önnina og vera klár þegar prófin byrja heldur en að biðja til æðri máttarvalda fyrir hvert einasta próf. Reyndar er ég alveg viss um það að ég er ekki eini nemandinn við HÍ sem hefur þennan sið í kringum prófin.
En anyway... guð er góður. Ég er alveg búinn að sjá það... hann er að minnsta kosti að bænheyra mig á hverri einustu önn. Ég vil nú meina að ítrekuð góðverk mín spili þar eitthvað inn í, ég t.d. stoppa alltaf til að hleypa gömlum konum yfir götuna og reyni alltaf að keyra ekki á kettina sem labba í veg fyrir bílinn minn.
En þar sem klukkan er núna að nálgast 2 og næsta próf hefst eftir ca. 8 klukkustundir er kominn tími til þess að ég biðji. Trúaðir og námsmenn geta tekið undir:
"Kæri Guð,
Ég vill biðja á því að þakka þér fyrir góða matinn sem ég fékk í dag. Upphitaðir afgangar eru einmitt uppáhaldið mitt. En það sem ég vildi ræða við þig núna eru prófin mín. Ég veit að ég sagði á seinustu önn að ég myndi verða duglegri að læra núna en ég get ekki að þessu gert. Málið er nefnilega það að ég fékk flís í augað sem olli því að ég gat ekki lesið sem skyldi. Þar sem ég er fórnarlamb aðstæðna bið ég þig um að bjarga mér í gegnum þessi próf og ég lofa svo að standa mig betur á næstu önn!"

0 Comments:

Post a Comment

<< Home