eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

29.3.07

Leiðarlok....

Aldrei þessu vant er ég algjörlega sammála henni Freyju minni! Maður eins og ég á ekki skilið að hafa bloggsíðu. Alveg frá því að ég hætti að slæpast í vinnunni hjá Símanum hefur þörfin fyrir að tjá mig á netinu snarminnkað... þegar ég eyði öllum vinnudeginum í að reyna að hugsa um eitthvað til að skrifa þá er ekki séns að ég nenni að gera það líka heima hjá mér á kvöldin.

Því vil ég nota þennan dag til að segja tvennt:
1. Króníkan er dauð og ég er mest hissa að hún hafi þó tórað þetta lengi.
2. Ég er hættur að blogga... læt mér nægja héðan í frá að skrifa í blöðin.

Takk fyrir samhuginn í gegnum tíðina.
V

5.3.07

Helvítis blogspot

Shit, hvað er komið langt síðan ég hef bloggað. Það er líklega tilkomið vegna þess að bloggið er ekki að þýðast mig heima fyrir og því verð ég að blogga í vinnunni. Það kemur bara mjög sjaldan tími til þess og því hefur bloggið setið á hakanum svo lengi.

Ég er sífellt að lenda í því að fólk segist vera að leita að nafninu mínu í Blaðinu til að lesa skrif mín, sumir halda jafnvel að ég sé hættur þar því nafnið mitt sést aldrei. Málið er bara það að allt sem ég skrifa er nafnlaust (enda megnið af því bara sori og því er það bara gott að nafn mitt skuli ekki bendlað við það.)

Ég vildi óska þess að ég hefði eitthvað sniðugt og úthugsað til að deila með ykkur en svo er ekki. Ég get hinsvegar glatt tölvunörda vini mína að ég er búinn að ganga frá kaupum á PS3 og geta því áhugasamir haft samband við mig um miðja næstu viku og fengið að kíkja í heimsókn til að berja alla dýrðina augum.

Gaman Gaman

31.1.07

Nörd....


Ég er kannski nörd en ég er að fara að prufukeyra þessa elsku á morgun. Þið sem hafið áhuga á þessu getið öfundað mig en þeir sem hafa engan áhuga geta farið og skorið úr sér sjónhimnurnar með bitlausri skeið.
Ég er ekki frá því að jólin komi snemma hjá mér þetta árið. Á meðal þess sem ég er að fara að prófa og skoða er Resistance:Fall of Man, Genji, Motorstorm og Gran Turismo HD.
Live long and prosper,
V

27.1.07

Áramótaheit....

Ég ákvað, þvert á geð mitt, að strengja áramótaheit. Ég hef reyndar aldrei staðið við mín áramóta heit en ég hlýt að fá plús fyrir viðleitni. Heitin eru fjögur þetta árið og þau er eftirfarandi.

I. Koma mér í form: Þetta segir sig sjálft, sama áramótaheit og annar hver Íslendingur strengir.
II. Reyna að temja mér snyrtilegri klæðaburð: Semsagt út með slitnu fótboltabolina og inn með skyrtur og bindi.
III. Hætta að taka í vörina: Mömmu er illa við þetta og svo er ég eiginlega hættur að nenna þessu. ATH... þetta mun gerast einhvern tímann á árinu.
IV. Fara að taka meiri áhætur í lífinu: Ég hyggst byrja rólega með þetta og mun fyrst um sinn prófa saklausari hluti eins og nota munnþurrkur og skeina mér með vinstri höndinni. Í lok árs áætla ég að vera kominn út í áhættumeiri hluti á borð við að elda og vera niðri í miðbæ eftir miðnætti um helgar.

Þetta er planið fyrir árið og ég mun reyna að gera mitt besta til að halda þessi áramótaheit.

9.1.07

Soldið leiðinlegur misskiliningur....

Í síðustu viku var verið að tala um það hvernig Morgunblaðið birti ranga mynd með minningargrein. Mynd af heilbrigðri (og sprelllifandi) kennara við HR var birt við minningargrein um konu sem lést á níræðisaldri. Þetta er skiljanlega mjög leiðinlegt atvik en þetta er bara smámunir miðað við það sem Herzlinde Eissler lenti.

Eftir að hafa verið lögð inn á spítala með magaverki og eftir að hafa dvalið á spítalanum í nokkrar vikur fór hún að furða sig á því að ættingjarnar hefðu ekki komið að heimsækja yfir jólin. Því fékk hún að fara að spítalanum til að athuga með familíuna. Þegar hún mæti heim gekk hún inn á fjölskylduna sína, alla svartklædda við að skipuleggja jarðarförina hennar. Þá hafði sonur hennar heimsótt hana rétt fyrir jól og fengið þær sorgarfréttir að mamma hans væri látin. Því hafði fjölskyldan eytt jólunum í að syrgja hana.

Við svolöguðu er bara eitt sem mér dettur í hug að segja: HAHAHAHAHAHAHA!

26.12.06

Nei, ég er ekki dauður.....

... að minnsta kosti anda ég ennþá!

Þessi jól og aðdragandi þeirra eru búin að vera strembinn.... á miðvikudaginn fyrir jól fékk ég þær gleðifréttir að ég þyrfti að skrifa 16 blaðsíðna Vinnuvélablað... aleinn. Það þýðir að ég þurfti að sitja sveittur alveg fram að jólum við að reyna að finna eitthvað efni til að fylla blað um eitthvað skíta viðfangsefni sem mér gæti ekki verið meira sama um. Það er óhætt að segja að þetta blað hafi aðeins drepið í jólaskapinu mínu.

Jólin sjálf eru búin að vera í rólegri kantinum en svo á morgun byrjar hasarinn aftur. Þar sem ég er ekki enn búinn að klára þetta helvítis vinnuvélablað þarf ég að byrja á því strax í fyrramálið og svo þegar það er búið get ég farið að skjóta upp flugeldum.

Ég er búinn að verða mér út um fullt af flugeldum frá Landsbjörgu, KR og Gullborg og svo á morgun mun ég skjóta þessu öllu upp og svo skrifa um herlegheitin.... vonandi að það geti aðeins létt lund minna draugfúlu samstarfsmanna.....

Vonum bara að ég missi ekki auga í þessari vitleysu.... en ef svo fer þá er þetta undarlegt vinnuslys fyrir blaðamann.

14.12.06

Oh It´s on!

Mér finnst vegið að þeim litla heiðri sem ég á eftir í síðustu vísunni henna Ástu. Ég veit að ég er tilfinninganæmur náungi með kvenlega rödd en ég grenja þó sjaldan... það koma kannski stundum tár en það er bara vegna þess að tárakirtlarnir mínir munu vera eitthvað fönkí.

Stekkjarstaur stirði var heljarinnar flón,
hann kleip í alla rassa og sendi dóna tón,
enginn bossi var hólpinn fyrir sveinka höndum,
rassafíkn sveinka var komin úr öllum böndum.

Í Hafnarfirði var ein snót sem angaði sem prump,
því sveinki vildi bara skítalykt og stærðarinnar gump,
en er sveinki mætti í fjörðinn var sorgin stór,
því stúlkan var í Köben, að læra og drýgja hór.

Á flugvöll sveinki skellti sér og keypti rándýrt far,
til Köben skyldi fara, því Ásta bjó víst þar,
á Strikinu fann hann stúlkuna á hamborgarastað,
þau hugi felldu saman og fóru í drullubað.

Þau búa nú víst saman í háum himnasal,
og sauðfé saman stela úr íðilfögrum dal,
en dýrin aldrei þau éta, það væri algjör synd,
því ekkert er betra í trekant en gömul, kollótt kind.