eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

29.9.06

Verði ljós....

Ég hlustaði á einstaklega sorglegan pistil í gærkvöldi. Ríkisútvarpið fékk til sín stjörnufræðing sem átti að fræða landann um undur himinhvolfanna sem áttu að blasa við okkur um leið og ljósin á höfuðborgarsvæðinu yrðu slökkt. Þessi pistill var í sjálfu sér ekki sorglegur heldur frekar fræðandi en það sem var hinsvegar mjög sorglegt að aumingja fræðingurinn endaði aðra hverja setningu á orðunum:"....ef þær sæust nú."
Ég reyndi að gera mitt besta til að glápa upp í himinn og reyna að fylgjast með orðum stjörnufræðingsins en gekk illa útaf þrennum ástæðum:

A)Það sást ekki neitt vegna skýja.
B)Ég hef tapað áttum eftir að ég flutti í bæinn, ég veit ekkert hvaða átt er suður og hvað er norður. Því reyndist mér erfitt að glápa í suðurátt. Horfði því frekar á allar þyrlurnar og flugvélarnar.
C)Fólki fannst þetta vera rétti tíminn til að grafa upp afgangana frá gamlárs og skjóta upp flugeldum.

Það þýðir víst lítið að kvarta undan skýjunum og ratvísi minni en þessir flugeldar voru ekki að gera sig. Þetta fólk sem fór að skjóta upp flugeldum er líklega þessar týpur sem myndu tala við sjálft sig frekar en að sitja í þögn. Þó svo að engar stjörnur hafi sést þá færðist viss ró yfir höfuðborgarsvæðið og mér fannst í eitt augnablik að ég væri kominn aftur heim í sveitina til mömmu. Það var mjög þægilegt augnablik en svo hófust sprengingar og mér var kippt snögglega úr rólyndis sveitinni yfir á sundursprengdar götur Beirút. Í staðinn fyrir að finna bragðið af súkkulaðikökunni hennar mömmu (í huganum) þá kíkti ég á bakvið stólinn og athugaði hvort að gyðingarnir væru nokkuð að læðast að mér. Svo reyndist ekki vera. Á endanum gafst ég upp og kveikti aftur á sjónvarpinu.

Ég held að ég geti lært tvennt af þessu kvöldi. Í fyrsta lagi þá er mér ekki ætlað að sjá stjörnubjartan himinn á meðan ég er búsettur á höfuðborgarsvæðinu og í annan stað.... ég þarf að láta mömmu baka fyrir mig súkkulaðiköku!

25.9.06

brrrrr......

Það er ekki oft sem ég fæ kuldahroll af því að horfa á bíómyndir. Það gerðist síðast þegar ég horfði á United 93 og hafði ég þá ekki fengið álíka kuldahroll í mjög langan tíma. Ég var hins vegar að enda við að horfa á trailer fyrir heimildarmyndina Jesus Camp og þá fékk ég þennan líka heiftarlega kuldahroll!

21.9.06

Bjartari tíð framundan.....



Á dögunum tilkynnti vopnaframleiðandinn BAE Systems að fyrirtækið hyggðist fara út í vistvænni vopnaframleiðslu heldur en fyrirtækið hefur stundað hingað til. Á meðal þess sem fyrirtækið hyggst framleiða eru blýlausar kúlur vegna þess að kúlur með blýi "can harm the environment and pose a risk to people" og hljóðlátari og umhverfisvænni flugskeyti. Tilgangurinn með þessum "hljóðlátari" sprengjum er að draga úr hljóðmengun. Einnig hyggst fyrirtækið framleiða handsprengjur sem gefa frá sér hættuminni reyk en aðrar handsprengjur á markaðnum.

Þetta finnst mér alveg magnað, einmitt þegar ég stóð í þeirri trú að manngæskan og góðvild manna á milli væri að deyja út þá kemur BAE fram sem framúrskarandi boðberi umhverfis- og mannverndar. Ég er alveg viss um það að þegar sá dagur kemur að Greenpeace fer að vígbúast þá munu þeir versla við BAE.

Í kjölfarið af þessu fór ég að velta fyrir mér hvort að fyrirtækið þyrfti ekki að fara að koma sér upp einhverju nýju grípandi slagorði til að fólk geri sér grein fyrir því að hér sé kominn fram á sjónarsviðið boðberi nýrra og bjartari tíma. Ég vil hér með bjóða fram mína aðstoð og nefni því til nokkur slagorð sem mér dettur í hug:

BAE - Killing you but not the earth!
BAE - Saving the environment one bullet at a time!
BAE - Silent enough for innercity combat!
BAE - Approved by Greenpeace, Eco friendly.

og síðast en ekki síst:

BAE - I can´t believe it´s not lead.

13.9.06

Þurrkatíð á enda???

Jæja.. loksins kom að því. Eftir langa bið eftir því að fá einhver atvinnutilboð þá létti loksins til í gær þegar haft var samband við mig og ég boðaður í atvinnuviðtal. Ég fór í viðtal í dag og ég held að þetta hafi gengið bara ágætlega, ég tileinkaði mér orð Estherar (Fake it till you make it) og reyndi að blása mig eins mikið upp í viðtalinu og mér er mögulegt.

En sem sagt, þetta viðtal var hjá Blaðinu og ef allt fer á besta veg mun ég verða blaðamaður á þeim ágæta fjölmiðli. Enn er of snemmt að gera sér einhverjar vonir en ég myndi vissulega hafa mjög gaman af því að komast inn í hinn "harða" heim blaðamennskunnar.

En ég sé fram á það að ef ég fæ þessa vinnu mun ég rúnta á milli híbýla vina og ættingja og eiga aðeins við merkingar á póstkössum. Mér finnst a.m.k. alveg merkilega margir vera með merkingar á póstkössunum sem stendur á. "Ekki Blaðið!" Það mun ekki ganga ef ég fer að skrifa æsifréttir þar.

En að lokum vil ég vitna í gamalt áramótaskaup þar sem þetta orðatiltæki á vel við núna.
"Það er ekki eftir neinu að bíða..... en bíðum samt aðeins lengur"

Krossleggið fingurna

4.9.06

Death to Klatremus

Ég er hér með kominn í heilagt stríð. En ólíkt mörgum öðrum þá snýst mitt "jihad" ekki um trúarbrögð, þjóðerni eða peninga. Mitt heilaga stríð er gegn arfleifð norðmannsins Thorbjörn Egener. Þetta er gaurinn sem ber ábyrgð á því að fólki eins og Sollu á Grænum Kosti er leyft að ganga laus í stað þess að vera bundin við staur líkt og Ingjaldsfíflið forðum daga. Thorbjörn Egener er maðurinn sem samdi hið vinsæla barnaleikrit Dýrin í Hálsaskógi (Klatremus og de andre dyrene i Hakkebakkeskogen) og frá og með þessum degi er þetta leikrit skotspónn alls míns haturs!

Og hvað er það sem gerir mig svona reiðan, hvað er það við þetta leikrit sem gerir það að verkum að mig langar persónulega til þess að grípa Lilla Klifurmús og snúa hann úr hálsliðnum. Jú það er hið sívinsæla grænmetislag sem er í raun og veru ekkert annað en heilaþvottur á börnum um að siðmenntað fólk borði ekki kjöt. Við skulum bara taka smá sýnishorn úr laginu til að leggja áherslu á mál mitt:

Sá er fá vill fisk og kjöt
hann frændur sína étur
og maginn sýkist molnar tönn
og melt hann ekki getur.


Ég vildi óska þess að þetta væri það versta en svo er ekki.

Þeir sem bara borða kjöt
og bjúgu alla daga
þeir feitir verða og flón af því
og fá svo illt í maga.


Hver andskotinn er í gangi með þetta lag??? Nú segir kannski einhver að þarna séu það dýrin sem eru að syngja og þetta eigi þá bara við þau en kommon.... hefur einhver prófað það að fóðra ljón einvörðungu á Tófú??? Heldur einhver að ljónið myndi lifa í meira en tvær vikur án þess að fá kjöt??? Ég fer að verða sammála honum Magga vini mínum, allt illt á rætur sínar að rekja til Noregs. Kannski að það renni norskt blóð um æðar Stebba Hilmars????

Ég er alvarlega að hugsa um að stofna samtök sem munu berjast fyrir því að þetta leikrit líti aldrei aftur dagsins (sviðsins) ljós. Hver er með???

A.m.k. get ég lofað ykkur því að ég mun ekki syngja: "Dvel ég í draumahöll..." í bráð fyrir son minn.