eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

27.1.07

Áramótaheit....

Ég ákvað, þvert á geð mitt, að strengja áramótaheit. Ég hef reyndar aldrei staðið við mín áramóta heit en ég hlýt að fá plús fyrir viðleitni. Heitin eru fjögur þetta árið og þau er eftirfarandi.

I. Koma mér í form: Þetta segir sig sjálft, sama áramótaheit og annar hver Íslendingur strengir.
II. Reyna að temja mér snyrtilegri klæðaburð: Semsagt út með slitnu fótboltabolina og inn með skyrtur og bindi.
III. Hætta að taka í vörina: Mömmu er illa við þetta og svo er ég eiginlega hættur að nenna þessu. ATH... þetta mun gerast einhvern tímann á árinu.
IV. Fara að taka meiri áhætur í lífinu: Ég hyggst byrja rólega með þetta og mun fyrst um sinn prófa saklausari hluti eins og nota munnþurrkur og skeina mér með vinstri höndinni. Í lok árs áætla ég að vera kominn út í áhættumeiri hluti á borð við að elda og vera niðri í miðbæ eftir miðnætti um helgar.

Þetta er planið fyrir árið og ég mun reyna að gera mitt besta til að halda þessi áramótaheit.

3 Comments:

At 21:17, Blogger Sveinsson said...

Gætir líka prófað að fá þér bjór með okkur vitleysingunum þegar við dettum í það heima hjá mér.

Ert að vísu að taka gríðarlega áhættu með því...

 
At 12:44, Anonymous Anonymous said...

Viggó í formi og með bindi, án neftóbaks og skeinir sér með vinstri er ekki lengur gamli Viggó! Hættu þessu rugli drengur, þú ert bestur með ístru.

 
At 07:43, Blogger Esther said...

Sko, það er nú í góðu lagi að taka smá áhættur en að fara að stofna lífi sínu og limum í hættu með því að nota munnþurrku er eitthvað sem ég get ekki sæst á. Það er óþarfi að lifa ALVEG á brúninni, Viggó!

 

Post a Comment

<< Home