Ég biðst forláts.....
Ég hef verið latur að blogga undanfarið. Fyrir því eru einkum tvær ástæður:
I. eftir að hafa skrifað allann daginn um allt frá brúnkuklefum til meintrar svindlstarfsemi BSR þá er ég varla að nenna því að setjast fyrir framan tölvuna og skrifa hugsanir mínar niður á bloggið.
II. Ótrúlega mikið álag í vinnu gerir það að verkum að eftir lok hvers vinnudags er ég hreinlega búinn á því.... þá er svolítið erfitt að fá skáldagyðjurnar í lið með sér.
Einhverjir hafa sagt að ég ætti að gefa upp hvað ég á í Blaðinu hverju sinni, það er mjög erfitt því ég veit sjaldnast sjálfur hvað kemur í Blaðinu fyrr en ég sé það á morgnanna. Því verð ég að hafna beiðni ykkar en ég mun reyna að gera skrif mín stærri og meira áberandi svo að þau verði merkt mér.
En áhugasamir geta kíkt á umfjöllun mínu um PS3 sem birtist einhvern tímann fyrir skömmu í sérblaði um Tölvur, tæki og Netið.
Ekki meira í bili,
V


3 Comments:
Ég er óáhugasöm... en flott samt!
Fyllerí á föstudag?
Hey gæ mikið er ég glöð að þú ert ekki á botninum. Hafði verulegar áhyggjur með þetta með kútinn. :-)
Vona að þú hafir gaman af vinnuni!
Post a Comment
<< Home