eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

16.10.06

Auglýst eftir kút... var hent í djúpu laugina!

Ja hérna.... og ég sem var að búast við því að ég fengi nú einhvern aðlögunartíma til að kynnast nýju vinnufyrirkomulagi og nýjum starfsháttum. Það var svo aldeilis ekki og ég held að ég eigi fimm fréttir sem birtast í Blaðinu á morgun.

Þetta var opinberlega erfiðasti fyrsti vinnudagur ævi minnar og ég er ekki að ljúga því þegar ég segi að umfjög ur leytið var ég alveg kominn á þá skoðun að mæta ekkert á morgun og hringja bara grenjandi upp í Síma og biðja um gamla starfið mitt aftur! En ég held nú að þau muni ekki taka við mér aftur og því er það ekki valkostur.

En svo að ég víki aftur að fyrsta vinnudeginum þá var tilkynnt strax um morguninn að ég ætti að líta á þrjár fréttir: Týndar rjúpnaskyttur, snjór í Esjunni og hagkvæmni strandsiglinga. Eftir því sem leið á daginn losnaði ég sem betur fer við strandsiglinga fréttina en í staðinn bættust víð ein frétt og tvær stuttar greinar um bílaeign fræga fólksins.

Þeir sem hyggjast lesa þessar fyrstu fréttir mínar þá vil ég benda þeim á að venjulega á ég mjög auðvelt með að skrifa texta en vegna gífurlegs álags fyrsta daginn minn líta þessar greinar líklega út fyrir að hafa verið skrifaðar af 14 ára ungling.

Það er greinilega stórt stökk frá þjónustuveri Símans yfir í blaðamennskuna.

23 Comments:

At 20:23, Anonymous Anonymous said...

Fall er fararheill, karlinn minn.

P.S. Ég er löngu búin að komast að því að það er ekki til sá starfsvettvangur á Íslandi sem veitir nýju fólki aðlögunartíma.

 
At 01:10, Blogger Garðar said...

Ég hef fulla trú á þér Viggó minn!

Keep up the good work

 
At 08:33, Blogger V said...

Smá update: Það eina sem tengist mér í Blaði dagsins er í sérblaðinu. Greinilega hefur snjór í Esjunni og týndar rjúpnaskyttur ekki verið nógu heillandi

 
At 12:53, Blogger Gummi said...

Flottur!

 
At 16:25, Anonymous Anonymous said...

Uss þú átt eftir að bursta þá þarna.

 
At 23:22, Anonymous Anonymous said...

Ég sit hérna við eldhúsborðið með Blaðið í höndunum. Þetta er bara fínt, hætt'essu væli! ;)

 
At 23:50, Blogger Sveinsson said...

Hlýtur að vera þreytandi að vera í vinnu þar sem maður þarf að sýna fram á afköst..

 
At 16:02, Blogger Gummi said...

when he shoots, he shoots to kill!

 
At 16:18, Blogger V said...

Hehehehe

 
At 07:49, Anonymous Anonymous said...

Sko... þú verður eiginlega að setja inn hvað það er sem þú skrifar í blaðinu á hverjum degi. Nú er ég t.d. búin að flétta í gegnum allt blaðið í dag og ég finn ekkert sem er merkt Little Bitch.. hvað þá Viggó, mér datt í hug að mögulega hefðir þú skrifað greinina um búálfinn.. en ef ég á að geta gert grín að þér þá verðuru að segja mér hvað það er sem þú skrifar.

Þú ert vonandi að skrifa eitthvað en ekki að láta púlla "The stapler guy" á þig ?

 
At 08:33, Blogger V said...

hmm.... ég skrifa og skrifa en þar sem ég skrifa ekki um hvalveiðar og hleranir þá koma fréttirnar mínar ekki í blaðinu

 
At 12:36, Blogger Gummi said...

Hvað er þá gert við þær? Hvernig ertu að fíla þetta annars?

 
At 17:45, Anonymous Anonymous said...

Hva... er svona mikið að gera hjá þér að skrifa í vinnunni að þú hefur ekki tíma til að skrifa hér? Annars er ég sammála því að þú ættir að skrifa hér eftir hvern vinnudag hvaða greinar gætu mögulega birst eftir þig...vantar þig ekki örugglega smá "uppbyggilega" gagnrýni??

 
At 10:14, Blogger V said...

Er alltaf á leiðinni að henda inn einhverjum pistli hérna en vegna mikilla veikinda hjá fjölskyldumeðlimum undanfarnar vikur hef ég hreinlega ekki nennt því. Svo hefur líka PSP tölvan mín étið upp allan minn frítíma... eftir að barnið er sofnað.

 
At 13:26, Anonymous Anonymous said...

Nü??

Var einhver klåmleikur ad koma üt ?

 
At 12:35, Blogger V said...

Nei... ennþá betra Ásta mín.... LEGO STAR WARS!!!!!!!!!!!

 
At 15:33, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju!! loksins kom merkt grein eftir þig í blaðinu og það bara á fyrstu síðu:)

 
At 18:34, Blogger V said...

Ég veit... ég er bara nokkuð ánægður með hana.... þó svo að það sé vika síðan ég skilaði henni inn.

 
At 10:06, Anonymous Anonymous said...

Greinin var mjög góð...congrats!

 
At 19:19, Blogger V said...

takk takk

 
At 07:55, Anonymous Anonymous said...

Nei, Viggó (sem ætti í raun að vera stytting á einhverju öðru nafni sem maður gæti notað þegar maður þarf að skamma þig)! Nú vil ég fara að sjá nýja færslu hérna. Það eru bara 10 dagar í að þessi eigi eins mánaðar afmæli.

Kommon!

 
At 11:08, Anonymous Anonymous said...

Hvernig er þetta hennti engin kút á drenginn? Er farin að hafa áhyggjur af þessu bloggleysi hér!

 
At 13:31, Blogger V said...

Esther: Þú getur kallað mig Viggó Ingimar þegar þú vilt skamma mig... það gera það flestir.

Anna Bogga (og aðrir): ég biðst afsakanir á bloggleysi... það er svona þegar vinnudagurinn er LANGUR þá er takmarkaður vilji fyrir því að setjast niður og skrifa meira.. en ég er að fara að bæta úr þessu.

 

Post a Comment

<< Home