Death to Klatremus
Ég er hér með kominn í heilagt stríð. En ólíkt mörgum öðrum þá snýst mitt "jihad" ekki um trúarbrögð, þjóðerni eða peninga. Mitt heilaga stríð er gegn arfleifð norðmannsins Thorbjörn Egener. Þetta er gaurinn sem ber ábyrgð á því að fólki eins og Sollu á Grænum Kosti er leyft að ganga laus í stað þess að vera bundin við staur líkt og Ingjaldsfíflið forðum daga. Thorbjörn Egener er maðurinn sem samdi hið vinsæla barnaleikrit Dýrin í Hálsaskógi (Klatremus og de andre dyrene i Hakkebakkeskogen) og frá og með þessum degi er þetta leikrit skotspónn alls míns haturs!
Og hvað er það sem gerir mig svona reiðan, hvað er það við þetta leikrit sem gerir það að verkum að mig langar persónulega til þess að grípa Lilla Klifurmús og snúa hann úr hálsliðnum. Jú það er hið sívinsæla grænmetislag sem er í raun og veru ekkert annað en heilaþvottur á börnum um að siðmenntað fólk borði ekki kjöt. Við skulum bara taka smá sýnishorn úr laginu til að leggja áherslu á mál mitt:
Sá er fá vill fisk og kjöt
hann frændur sína étur
og maginn sýkist molnar tönn
og melt hann ekki getur.
Ég vildi óska þess að þetta væri það versta en svo er ekki.
Þeir sem bara borða kjöt
og bjúgu alla daga
þeir feitir verða og flón af því
og fá svo illt í maga.
Hver andskotinn er í gangi með þetta lag??? Nú segir kannski einhver að þarna séu það dýrin sem eru að syngja og þetta eigi þá bara við þau en kommon.... hefur einhver prófað það að fóðra ljón einvörðungu á Tófú??? Heldur einhver að ljónið myndi lifa í meira en tvær vikur án þess að fá kjöt??? Ég fer að verða sammála honum Magga vini mínum, allt illt á rætur sínar að rekja til Noregs. Kannski að það renni norskt blóð um æðar Stebba Hilmars????
Ég er alvarlega að hugsa um að stofna samtök sem munu berjast fyrir því að þetta leikrit líti aldrei aftur dagsins (sviðsins) ljós. Hver er með???
A.m.k. get ég lofað ykkur því að ég mun ekki syngja: "Dvel ég í draumahöll..." í bráð fyrir son minn.


6 Comments:
Bjúgu eru vond... má bjóða þér í grænmetislasagna annað kvöld?
NEI!!!!!!!! Lasagne á að vera fyllt með líkum þúsund slátaðra muumuu barna (nautakjöti) ekki brokkolí og linsubaunum... eða hvaða drasli sem stungið er í þetta!
Boy, you are on your own.
Hehehe... þessi fleyga setning á jafnt við mig og Ragnar... nema ég get litið á grænmetið sem meðlæti með kjötinu. Það á Ragnar erfitt með. Sem sagt grænmeti er meðlætið.... ekki aðalrétturinn!
Vissulega.... hefst nú leitin mikla að ketti og einhverjum sem vill hýsa kvikindið..... svo mikið er víst að ég hef engan áhuga að taka kött að mér, því þær skepnur eru óeðlilega leiðinlegar.
ahhhh... gracias....eða réttara sagt spassiba.
Post a Comment
<< Home