Blekking aldarinnar!?!
Ég stóð alltaf í þeirri trú að metrosexualismi væri eitthvað nýtt fyrirbæri en ef eitthvað er að marka þetta þá er Gillzenegger ekki sá frumkvöðull sem ég taldi hann vera.
Þetta tel ég vera einn merkasta fornleifafund síðari ára og tel ég að þetta geti breytt allri söguskoðun okkar.
Ímyndið ykkur Jesús Krist með vel snyrtar neglur og hárið sleikt aftur. Ghengis Khan með David Beckham hanakamb að ráðast til atlögu við Kínamúrinn! Napoleon Bonaparte að bæta sér upp hæðina með því að vera heltanaður og þrælmassaður á vígvellinum?
Er ég sá eini sem gerir sér grein fyrir því hversu mikla þýðingu þetta hefur fyrir mannkynssöguna???


2 Comments:
Viggó... segir þetta þér ekki að þetta ætti þá ekki að vera neitt nýtt fyrir þér ?!
Ég held að þeir hafi verið grýttir til dauða...eins og ætti að gera við Gillzenegger!
Post a Comment
<< Home