SUMAR!!!!!!

Ahhhh.... íslenska sumarið!!! Maður er búinn að kvarta undan þessu landi svo oft að ég er í alvörunni að hugsa bara um að hætta því. Ég ætla þó bara að segja að ég bind miklar vonir við þetta!
Annars er heimsókn til Gumma farinn að verða meira og meira heillandi. Mér skilst nefnilega að í Danmörku komi upp árvisst fyrirbæri sem heitir sumar og mig er farið að langa mjög mikið til þess að kynnast því.


1 Comments:
Og ég er búinn að spyrja marga dani út í þetta sumar þeirra og þeir eru allir á sama máli. Það kemur víst ekki alvöru sumar fyrr en í ágúst, þó að það sé 20 - 30 stiga hiti þessa dagana.
Post a Comment
<< Home