eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

10.5.06

Helvítis skóli

Guð hvað ég er orðinn þreyttur á þessu blessaða framhaldsnámi. Ég hef á tilfinningunni að þessi litla geðheilsa sem ég átti eftir sé að skríða út um dyrnar. Getiði ímyndað ykkur hvernig ástandið á mér væri ef ég lærði eins og venjulegur háskólanemi alla önnina??? Þá stæði ég líklega núna fyrir framan spegill í flegnum kjól, með varalit í hönd og raulaði "I feel pretty, oohh so pretty" á meðan að ég klíndi varalit út um allt andlitið á mér.

Það eina sem heldur geðheilsunni í lagi er EBAY þar sem ég er farinn að eyða óþægilega miklum tíma og peningum. Ég held að það sé best að ég ræði sem minnst um hvað ég er að skoða því þá væri ég búinn að tryggja það að meira að segja strákarnir úr Beauty and the Geek þáttunum myndu hlægja að mér. Og það er eitthvað sem ég vil ekki að gerist.

Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að síðasta prófið er á morgun og svo tekur bara við HEAVY ritgerðarvinna en þessu ætti öllu að vera lokið 22. maí. Og ef allt gengur að óskum (sem ég er nú ekkert voðalega bjartsýnn á) þá mun ég útskrifast 24. júní! Ég hef ákveðið að halda enga útskriftarveislu en þess í stað bara að taka þeim mun betur á því í þeirri útskriftarveislu sem búið er að bjóða mér í! En ef einhverjum langar til þess að halda drykkju mér til heiðurs þá mun ég auðvitað mæta og leyfa öllum að njóta visku minnar (eða fáfræði)

En nú eru bækurnar farnar að garga á mig, best að hækka vel í Killswitch Engage og hella sér í aðferðafræðina (jesús, hvað það er leiðinlegt fag)

Yfir og út,
V

5 Comments:

At 14:30, Blogger Esther said...

Þetta er nú ekkert svooo leiðinlegt fag. Ein andvökunótt með glósunum framundan og þú massar þetta auðveldlega drengur minn!

Pollíana biður að heilsa :)

 
At 20:14, Anonymous Anonymous said...

Þú ert svo heppinn að eiga svona góða vini.

 
At 21:12, Blogger Gummi said...

Skóli lífsins rúlar!

 
At 14:21, Blogger V said...

Hey Maggi.... Þú ert feitari en ég!

 
At 19:52, Blogger Sveinsson said...

Heyri ég talað um vöðva....?

 

Post a Comment

<< Home