Tony Jaa
Nú kannski spyr einhver sig: "hver er þessi Tony Jaa???" Jú, þessi litli maður er einn sá allra harðasti nagli sem ég hef séð í áraraðir. Hann er lítill, rindilslegur tælendingur sem leggur stund á bardagalistir með sérstaka áherslu á Muy Thai (veit ekkert hvernig þetta er skrifað). Þeir sem hafa séð myndina Ong-Bak ættu að kannast við kauða en þeir sem hafa ekki séð hana hafa misst af miklu (nema að þeir horfi ekki á slagsmálamyndir og vilji bara sjá myndir með hvolpum og regnbogum í aðalhlutverki). Þeir sem nenna geta séð meistara Jaa að störfum hér.
Ég hef ákveðið að þegar ég verð stór vill ég verða tælendingur!


4 Comments:
Mér langar í hvolpamynd með regnboga og og bleikum litum.
djís...þú nú líka orðinn ástfanginn af hálfnöktum fimleikamanni, hvar endar þetta...
Já hvernig væri það Magnús að þú myndir pikka upp nokkrar Manga sögur handa mér... þeim mun ofbeldisfyllri þeim mun betra. Einnig langar mig í risa Godzilla styttu og ef þú hefur tækifæri til þá langar mig í einn ajax-dverg!
Vill? Var ekki búið að ræða þetta við þig?
Post a Comment
<< Home