Keila!!!

Guð hvað ég er lélegur í keilu.... þetta er ekki einu sinni fyndið lengur. Ég fór og keppti um daginn í keilumóti Símans með minni deild og gaman að segja frá því að ég held að liðið mitt hafi lent í síðasta sæti. Við vorum afspyrnu léleg og hef ég ekkert okkur til varnar. Ég vildi óska þess að ég gæti sagt að sólin hefði verið í augunum okkar og við því ekki séð brautina en svo var ekki. Ég væri sáttur ef ég gæti sagt að slæm lykt af andstæðingum hefði slegið okkur útaf laginu en ég get það víst ekki því allir ilmuðu voða vel. Ég get ekki borið við drykkjuskap hjá mínu liði því við vorum öll edrú. Eina málsvörnin sem ég hef er líklega sú að við erum hreinlega léleg í keilu.
Í kjölfarið af þessu fór ég að hugsa.... mig vantar eitthvað áhugamál. Ég get ekki endalaust haft tölvuleiki sem mitt eina áhugamál og keila er eitthvað sem hentar mér greinilega ekki. Ég hef prófað golf en það er eitthvað við það sport sem ég er ekki að "fíla". Sure það er gaman að slá kúluna út í loftið en ef ég þarf að miða á eitthvað ákveðið þá dettur allt stuðið úr því.
Ég hef lengi spáð í því hvort ég ætti að fara að dunda mér við eitthvað föndur (útskurð, mála eða eitthvað svoleiðis) en mínir 10 þumalfingur koma í veg fyrir að eitthvað svoleiðis geti gengið.
Því langar mig að auglýsa eftir hugmyndum um áhugamál. Þar sem að bara júrarnir mínir kommenta hjá mér (og stundum Maggi minn) þá býst ég ekki við neinu stórkostlegu en ég held þó í vonina um að það komi einhverjar áhugaverðar hugmyndir


6 Comments:
Varstu edrú í keilu? Ég held að ég geti talað fyrir alla hérna og sagt; Þú ert Júragarðinum til skammar!
Hvað hugmyndir varðar legg ég til að þú fáir þér kaktus og horfir á hann vaxa. Eða þú gætir keypt/leigt gokart bíl og skráð þig í eitthvað félag þarna í bænum. Held þú þurfir ekkert að kaupa bíl frekar en þig langar...
Gætir líka lagt fyrir þig Pool!
Eða fengið þér gítar - bassa ef þú heldur að þú sért með 10 þumalputta.
Fótbolti?
Hraðganga?
áhugaverðar hugmyndir.... ég tek þær til skoðunar. Ég fór reyndar í keilu viku fyrir mótið (æfingarbúðir) og þá var ég fullur. Ég var reyndar sá eini sem var fullur og það var ekkert svo gaman.
hmm... sauma, prjóna, safna frímerkjum, spila bingó, það er hellingur í boði af svona hobbýum! Já og svo geturðu púslað, keypt svona púsl með 5000 stykkjum, það ætti að endast þér eitthvað :)svo geturðu náttúrulega skrifað fleiri bækur!!
"GAZA" - af því að Viggó er svo hrifinn af Zetum...
Hviss bamm búmm...bara að spyrja Gumma sko!
HAHAHAHA... hljómsveitin Gaza... Maggi á gítar, ég á bassa, Hákon Marteinn á trommur og Barði Syngur.... svo geta Emmi og Raggi sungið bakraddir og rótað fyrir okkur!
Mér finnst að ég ætti að vera umboðsmaðurinn ykkar...
Post a Comment
<< Home