Áramót
Jæja.... þá eru enn ein áramótin búin og þau voru í rólegri kantinum vegna veikinda hjá drengnum mínum. Guttinn var samt einn sá allra fjörugasti í öllum hópnum og var hann einn sá allra síðasti til að geispa. En annars voru þessi áramót bara fín: góður matur, slappt skaup og skothríð sem lætur stríðshrjáðu svæðin líta út eins og regnbogaland fullt af Kærleiksböngsunum og litlum hvolpum.
En svo er það bara spurning hvað árið 2006 ber í skauti sér??? Vonandi nær maður að klára þennan blessaða skóla svo að maður geti farið og brennt allar glósurnar og fylgst með hinum illum öndum menntunar svífa upp. Svo er bara að taka til við að vinna í listanum góða yfir hluti sem ég ætla að gera á árinu.
En ég verð samt að minnast aðeins á pylsupartí ársins 2005. Þannig er að á föstudaginn var haldið kveðjupartí fyrir hana Auði Elísabet sem er á leiðinni til Ítalíu til að smakka ítalskar pylsur. Mér skildist á öllum að það myndi mæta fullt að fólki heim til Jónínu en þegar ég mætti á staðinn var ég eini karlmaðurinn (ef ég má gerast svo djarfur að kalla mig karlmann) á staðnum. Já þetta var pylsupartí og ég var eina pylsan en fullt af pylsubrauðum. Eftir þessa kvöldstund er ég miklu fróðari um hugsunargang samstarfskvenna minna. Ég veit hvaða karlmenn í vinnunni eru með óstjórnlega vonda líkamslykt, hverjir eru með hrikalegt bremsufar í brókinni og hvaða gaurar þykja óstjórnlega sexí. Sem betur fer var ég ekki tilnefndur í fyrstu tveimur flokkunum en því miður komst ég ekki heldur á blað á sexí listanum. Það særði mitt litla hjarta. Svo komst ég að því að skórnir sem ég keypti mér á 500 kr. þykja ekkert voðalega flottur í augum sumra. En já, þetta var áhugavert pylsupartí og nú bíð ég bara eftir því að hinar og þessar samstarfskonur fari að bjóða mér mútur fyrir að þegja yfir hinum ýmsu leyndarmálum. Ætli Lára mín sé þar ekki efst á blaði.


8 Comments:
Rassálfar? RASSÁLFAR??
Ertu með einhverja betri hugmynd???
Hvar er Galapagos á listanum?
Galapagos er númer eitt.... ég vill bara ekki að fólk viti að ég sé með fetish fyrir risaskjaldbökum! Númer tvö er að hætta að taka í vörina!
hætta að taka í vörina? Til hvers? Það er gott. Maður er óheyrilega flottur með í vörinni og konur dragast að manni eins og flugur að mjög svo kynæsandi kúk....stundum skil ég þig bara ekki.
Ég er bara orðinn þreyttur á því að verða fyrir aðkasti í hvert sinn sem ég fæ mér í vörina. Fólk sýnir bara málstað okkar engan skilning... mér líður stundum og ég sé einn í heiminum og enginn skilur mig nema þú Gummi minn!!!!
Umm... hver er þinn málstaður?
Málstaðurinn er vörinn...get it? mál...vörin...ahahaha *sigh* (ég á mér ekkert líf.)
Post a Comment
<< Home