Jæja þá er þetta jóladæmi að mestu búið og þá geta hlutirnir aftur orðið eðlilegir. Þetta jóladæmi er svo sem fínt en ég er hálf feginn að allt þetta vesen er búið. En jólin voru nokkuð góð annars, eyddum jólunum í sveitinni hjá foreldrum mínum og það var bara mjög þægilegt. Það sem bjargaði alveg jólunum var einkum tvennt. Í fyrsta lagi þá komst ég í jólafótboltann sem klikkaði í fyrra. Manni finnst einhvern veginn ekki vera komin jól nema að maður ná að sparka í tuðru á aðfangadagsmorgun.

Hitt atriðið sem bjargaði jólunum voru hvolparnir. Þannig er mál með vexti að í september fæddust 7 hvolpar í sveitinni. 5 þeirra eru búnir að finna heimili en tveir, Skuggi og Pjakkur, hanga ennþá í sveitinni. Pjakkur er búinn að finna varanlegt heimili í sveitinni en Skugga vantar heimili. Þannig að ef það er einhver sem vill fá síðbúna jólagjöf í formi hvolps getur sá hinn sami haft samband við mig!


5 Comments:
Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að hann varð eftir... ég er hætt við hugsjónina að taka að mér svört börn sem hafa engan til að hugsa um sig!
Nei veistu hann bara varð einhvern veginn einn eftir heimilislaus. Mér finnst það bara krúttlegt þegar hann ælir grænu slími og hausinn hans snýst 360 gráður. Skil bara ekki afhverju enginn vill hann!
Hvað verður um hann ef enginn vill hann?
This comment has been removed by a blog administrator.
Ef enginn vill hann er ansi líklegt að hann fari að pissa utan í stóra brunahanann á himnum, hann mun elta himneska strætóinn, hann mun gelta sitt síðasta, hann verður grafin við hliðina á beininu. Dettur ekki fleira í hug. Efast um að foreldrar mínir nenni að hafa 4 hunda. Þau eru varla að nenna að hafa 3!
Post a Comment
<< Home