eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

15.12.05

Jóla hvað???


Þvörusleikir næst í byggðanna skreið,
þar sem risa stór þvara sveinka beið,
hann þvöruna greip og stökk inn í fjós,
þarsem hjá kúnum logaði veikt kertaljós.

Með þvöru að vopni í flórinn hann rauk,
og ferskan kúaskít með hendinni strauk,
svo át hann skítinn á skammri stund,
og sletti í mjólkurpottinn pínu brund.


Pottasleikir var skrýtinn gamall kall,
sem safnaði lýsi í stóran, ljótan dall,
um sveitir hann flakkaði á milli bæja,
og reyndi við bæði gellur og gæja

Er náði hann í gaur, upp í fjöll hann tældi,
og gaf honum vín þar til hann drapst eða ældi,
Því sveinki vildi hafa eitthvað fyrir stefni,
og lýsið er ódýrt og afbragðs sleipiefni.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home