Ást við fyrstu sýn!
Ok ég játa það að ég er leikja nörd og mér er bara alveg sama. Ég var að fá PSP tölvuna mína í hendurnar núna rétt áðan og tilfinningarnar sem eru innra með mér eru mjög blendnar. Mér líður svona eins og mér leið þegar ég sá nakin kvenmannsbrjóst í fyrsta sinn face-to face(réttara sagt face-to-chest). Fyrst um sinn þá horfði ég bara á PSP-inn og þorði varla að snerta hana. Var hræddur um að mínir skítugu puttar væru ekki þess verðugir að snerta þessa tæknilegu fullkomnun. Svo prófaði ég að snerta hana mjúklega og snertingin ein var næg til að sælu hrollur fór um minn þybbna skrokk. Svo prófaði ég að kveikja á þessari elsku og þá brustu allar flóðgáttir og ég grét eins og lítil skólastelpa sem á ekki fyrir sígarettum.
Það eina sem ég þarf að gera núna er að reyna að komast heim úr vinnunni svo að ég geti farið að kanna hvern einasta fersentimetra á þessu guðdómlega apparati. Eins og ég segi... ég er nörd en þetta er ást við fyrstu sýn!


3 Comments:
Ég skil þig svooooooooo vel...
*slef*
Við erum allir svooooo veikir. Hef alltaf haft þá hugmynd, svona frekar aftarlega í hausnum að við færum allir í hóp til sálfræðings og athuga hvort hann myndi enda á Kleppi eftir að hafa talað við okkur....
Post a Comment
<< Home