Stór ákvörðun
ég hef tekið stóra ákvörðun. Í samráði við sálfræðinginn minn (sem ég birti mynd af fyrir stuttu síðan) hef ég ákveðið að hætta að haga mér eins og lítil tík og einnig hef ég ákveðið á hætta að hlusta á skynsemisrök og gera það sem mig langar að gera. Í þeim tilgangi hef ég gert lista af hlutum sem ég hef gefið mér eitt ár til að ljúka. Ef ég næ ekki að klára þennan lista fyrir næstu áramót (2006/2007) mun ég sætta mig við hlutskipti mitt sem tík og mun hætta að kvarta undan því að vera kallaður tík. Þar sem fyrstu tveir liðirnir þola ekki dagsins ljós mun ég bara telja upp liði 3-10.
1.xxxxxxxx
2.xxxxxxxx
3. Fara til útlanda (alveg sama hvert svo lengi sem ég þarf að tala annað tungumál en íslensku, færeyjar og grænland koma alveg til greina)
4. Fá mér annað tattoo
5. Prófa snjóbretti (helst í brekku en sætti mig við jafnsléttu)
6. Safna kjarki og senda bókina mína til útgefanda.
7. Útskrifast úr Háskólanum
8. Komast á tónleika með Deftones, Manson, Slipknot, Sigur-rós eða U2 (veit... soldið ólíkar hljómsveitir)
9. Ekki fara í ljós
10. Kaupa mér PS3 (ef hún kemur út innan árs)
Nú er bara að fara að X-a hlutina smátt og smátt af listanum!


2 Comments:
Halló! Ég heiti gummi og á eftir að koma hingað oft, þér og öðrum til mikillar mæðu. Oftar en ekki á ég eftir að segja einhverja bölvaða vitleysu þar sem ég hef ekkert betra að segja.
En ef ég ætti að segja eitthvað núna, þá held ég ég erfiðast verði fyrir þig að komast yfir númer 1 og 2 á listanum.
hehehehe... allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi
Post a Comment
<< Home