eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

5.12.05

Tjelling!!!!

Hvað er það í fari mínu sem hefur þær afleiðingar að fólk kýs að kalla mig kellingu (eða eins og sumar mannvitsbrekkur segja Tjelling). Þetta áreiti hefur aukist gífurlega upp á síðkastið og hef ég í kjölfarið af því þurft að leita mér sérfræðingsaðstoðar. Fann mér þennan fína sála sem að mér líður mjög vel nálægt. Læt hér fylgja með mynd af honum og smá brot úr síðasta tíma okkar.

V: Mér er bara farið að líða mjög illa yfir því að vera alltaf kallaður kelling!
Dr: Og afhverju líður þér illa yfir því að vera kallaður kelling?
V: Afþví að ég tel mig vera karlmann.
Dr:Og afhverju telurðu þig vera karlmann?
V:Afþví að ég hef ýmisleg líkamleg líffæri sem flokka mig sem karlmann en ekki konu.
Dr:Og afhverju telurðu þig vera með ýmisleg líkamleg líffæri sem flokka þig sem karlmann en ekki konu?
V:Eh.... ertu bara að taka orð mín og umorða þau sem spurningar?
Dr:Æ, komdu hingað vinan og sestu í kjöltuna á mér.
V:Og hvað á það að leysa???
Dr:Þegiðu kelling og sestu í kjöltuna á mér!!!!

Sem sagt vel heppnaður tími hjá sálfræðingnum mínum. Sé sko ekkert eftir því að peningarnir mínir fari í það að byggja nýjan sumarbústað í Skorradalnum fyrir þennan snilling. Ég er alveg viss að með tímanum mun þessi ágæti maður hjálpa mér að finna karlmennsku mína.... eða afmeyja mig!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home