eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

15.12.05

Próf og loðinkjammi.

Jæja.... þá er loksins þetta prófakjaftæði yfirstaðið og ég get farið að reyna að stilla af svefninn aftur. Það er líklega ekki af hinu góða til lengdar að ná 2-4 klukkustunda svefni á nóttu. En hey, ég er ennþá uppistandandi og ennþá tík svo að ég ætla ekkert að kvarta. Það sem hefur verið merkilegast hjá mér undanfarið fyrir utan próflestur og klámvísu keppni við Ástu, þá er það án efa hin unaðslega stund sem við Daði áttum saman í dimmum sal. Ég verð að viðurkenni að fyrirfram hafði ég miklar væntingar en hann olli sko alls engum vonbrigðum. Ég hafði ímyndað mér að hann væri stór en hann var svo stór og loðinn að ég get varla lýst því. Rúmum þremur klukkutímum síðar gengum við Daði út sáttir en mjög þreyttir. Þetta er kvöldstund sem við munum líklega seint gleyma.

en ekki meira í bili....
V

eh... ég var búinn að minnast á að við Daði fórum að sjá King Kong var það ekki??

9 Comments:

At 18:27, Blogger Gummi said...

sama sagði daði...minntist að vísu ekkert á að hafa verið á einhverri mynd. Ertu ekki bara að búa það til?

 
At 18:35, Blogger V said...

jú.. þetta er allt lygi. Við Daði eigum í eldheitu ástarsambandi en við viljum ekki að neinn frétti af því! Heldurðu að þú getir þagað yfir þessu?

 
At 19:33, Blogger Gummi said...

Ekki sjens!!

 
At 22:05, Blogger Garðar said...

ahhh... þess vegna hefur daði verið að tala svo mikið um stelpur undanfarið. Daði er ekki svo vitlaus, þið ætlið að bíða með að láta nokkurn vita þangað til það er orðið official!

en við erum klárari en það

 
At 12:49, Anonymous Anonymous said...

Fyrir STAFNI... lúði! Vísan er ónýt.

 
At 14:02, Anonymous Anonymous said...

Gekk vel í félagsfræðiprófinu?

 
At 14:45, Blogger Sveinsson said...

Here's my comment.

 
At 10:46, Blogger V said...

ég hef bara tvennt að segja:
Eva: Prófið gekk skítsæmilega, frekar erfitt að dæma hvernig þetta fór.
Freyja: Þú ert lúði, ég vill hafa þetta stefni og hana nú. Þú getur bara sjálf verið ónýt.

 
At 20:53, Anonymous Anonymous said...

Enda eru vísur ofmetnar...

 

Post a Comment

<< Home