eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

28.12.05

Fóbíur

Ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað það er óheyrilega kúl að vera með einhvers konar fælni. Hvort sem það er Arachnaphobia, Ichthyophobia eða Kolpophobia þá eru fóbíur óheyrilega svalt fyrirbæri. Einn vinur minn er t.d. með mjög sérstaka fælni. Hann getur ekki undir neinum kringumstæðum pissað á almannafæri (talandi um sjúklegan sviðskrekk). Einu sinni vorum við staddir saman á Hróaskeldu og það eru hlandskálar meðfram nánast öllum veggjum. Þar pissuðu allir strákarnir (og sumar stelpurnar) og engum fannst það athugavert. Nema hann vinur minn sem gat engan veginn sætt sig við þá aðstöðu og þurfti því oft að bíða með hinum stelpunum í biðröð eftir því að komast á almennilegt klósett. Það var bara óheyrilega fyndið.

En svo að ég hætti nú að tala um hann vin minn þá vill ég aðeins deila með fólki minni fælni. Mín fælni heitir hinu fallega nafni Coulrophobia og það sem felst í þeirri fælni er sjúkleg fælni við trúða. Ég er kannski ekki með þessa fælni á háu stigi en mér stendur sko alls ekki á sama þegar ég mæti einhverjum af þessum kvikindum. Ég hef lengi spáð í því hvað það er í fari trúða sem skelfir mig svona svakalega og ég get lofað því að það er ekki vegna þess að ég horfði of oft á IT þegar ég var lítill. Og þetta er ekki afþví að ég er búinn að lesa mér of mikið til um John Wayne Gacy. Það sem ég held að sé málið hjá mér er það að þessi helvíti eru með bros málað á andlitið á sér. Maður veit aldrei hvað þessi helvíti eru að hugsa. Þeir gætu verið að skemmta í einhverju barnaafmæli með bros á vör en verið að hugsa um leið að það væri nú gaman að slátra einum kettling fyrir framan börnin, nauðga svo einni mömmunni með einu af creepy blöðrudýrunum sínum, kúka svo á gólfið og velta sér upp úr skítnum. Mynd sem mér finnst lýsa hugsunarhætti trúða mjög vel er meistarastykkið Killer Klowns from outer space, mæli með því að allir horfi á þá mynd og hugsi sig svo tvisvar um áður en þeir hlæi að fíflalátunum í einhverjum trúð. Skilaboð mín eru þessi... ALDREI TREYSTA TRÚÐ!!!!

13 Comments:

At 16:29, Anonymous Anonymous said...

Killer Klowns er vissulega schnilld. En þessar hugmyndir þínar um hvað trúðar gætu gert okkur hinum...whaaaaaaat? What's wrong with you man!?

 
At 18:44, Blogger V said...

Það er nú ýmislegt að mér en það breytir ekki því að trúðar eru sendiboðar hins illa!

 
At 23:21, Anonymous Anonymous said...

Ég segi að við sálgreinum alla sem gera grín að Viggó. Sindri er augljóslega vinur þinn sem getur ekki pissað fyrir framan aðra og þjáist þar að auki af heiftarlegu getuleysi.

 
At 00:07, Blogger V said...

Sindri er reyndar ekki maðurinn með pissuvandamálið og ég þori ekki að fullyrða með getuleysið. Held samt að Sindri sé lítið skárri heldur en ég!

 
At 11:40, Anonymous Anonymous said...

Ég segi: "Gerum grín að Viggó!"

Ég held að ég eigi alveg fullt af kvóta (fyrirfram) miðað við allt grínið sem ég á eftir að lenda í þann 20. jan.

 
At 13:40, Blogger V said...

Ási(???) minn, þetta grín sem þú talar um og þessi kvóti sem þú segist eiga inni er einfaldlega bara bull! Þú kallaðir þetta yfir þig sjálfur!

 
At 16:09, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst reyndar einstaklega asnalegt þegar karlmenn fara inní básinn þegar þeir þurfa bara að pissa í stað þess að nota skálina - aldrei að vita nema einhver komi inn og þurfi virkilega að nota básinn!

 
At 16:26, Anonymous Anonymous said...

Ég segi gerum grín að Ása enda er hann kelling!!!

 
At 19:29, Blogger V said...

Ég ætla ekki að þræta fyrir það að Ási er algjör kelling!

 
At 20:56, Blogger V said...

Ég held líka að Ási sé illa haldinn af Automatonophobia. Það hefur valdið þeirri andfélagsleggu hegðun sem við erum að verða vitni að hérna!

 
At 23:31, Blogger Gummi said...

Mér finnst bara ekkert fyndið við það að geta ekki pissað á almannafæri...viti þið hvað það er óþægilegt?? Ég veit það...eh...ég meina...SHUTUP!!

 
At 18:07, Blogger V said...

Gummi minn, ég sem passaði mig svo vel að nefna engin nöfn. Ég gróf kannski gröfina en þú hoppaðir ofan í og mokaðir yfir þig sjálfur. Way to Go!

 
At 20:01, Blogger Gummi said...

ég kann að hoppa....

 

Post a Comment

<< Home