And the wiener is.....

Horfði á endursýningu á Köllunum í gærkvöldi og ég verð að segja að þetta er frekar "áhugaverður" þáttur. Það litla sem ég sá var svona extreme makeover/queer eye for the straight guy/dumb and dumber blanda. Það sem mér fannst áhugaverðast við þennan þátt var hinn augljósa sjálfsdýrkun hjá þáttastjórnendum (sem reyndar kemur engum á óvart) því meiri hlutinn af þættinum fannst mér fara í það að sýna Gillz og Hanz að pósa eða lyfta með sveitt handboltarokk undir (reikna með að heyra í Creed í næsta þætti.) Það er ekkert að því að vera með sjálfstraust en öllu má nú ofgera.
Annað sem mér fannst merkilegt var það þegar ég horfði á kreditlistann rúlla eftir þáttinn og hver Z á fætur annarri rúllaði upp. Miðað við hvað stafurinn Z er lítið notaður í íslenskri tungu (ef hann er þá eitthvað notaður) fannst mér merkilega mikið notað af honum í þessum tiltekna kreditlista. Sérstaklega fannst mér Z mikið notuð í nöfnum einstaklinga, Geir Ólafsson var skyndilega orðinn Geir Ólafz. Þetta finnst mér mjög "spes" útfærsla og ég er jafnvel að spá að tileinka mér þetta sjálfur. Héðan í frá kýs ég að vera kallaður Viggz því það finnst mér gera mig aðeins svalari.
Annars gengur mín eigin þáttagerð ekki nógu vel. Ég get ekki sagt að ég hafi fengið góðar undirtektir... örfáir hafa boðið fram aðstoð sína en aðeins tveir komið með einhverja hugmynd (Gummi er hetjan mín eins og venjulega og Bo klikkar ekki frekar en venjulega), ekkert hefur heyrst frá myndatöku"manninum" og heilinn minnz (sáuði hvað ég gerði þarna?) er í dvala þessa daganna. Ég ætla samt ekki að láta smá mótlæti stöðva mig og lýsi ég hér með eftir hugmyndum og fólki til að taka þátt í þessari tilraun.
Blez blez (sjáiði, ég gerði það aftur!)
Vz


8 Comments:
sko...ekki ætla ég að gera þeim það til geðs að nota þennan bókstaf í nokkuð sem helst!
Hver verður tökumaðurinn þinn/okkar?
Tökumaðurinn situr þögull á sínu hásæti.... á meðan að hann þegir nefni ég engin nöfn
engin nöfn...ertu að tala um Freyju?
Party 101 var hörmung á borð við Titanic, Hindenburg og síðustu tilraun Everton við meistaradeildina. Það er best að við skulum reyna að gleyma þessu sem fyrst.
Og þetta er ekki Freyja.... ef hún hefði myndavélina myndi hún bara taka mynd af nammihillunum í Hagkaup!
var bara sýndur einn þáttur af þessu party101 og svo bara cansellaður?
hej...
líkaði ekki þetta comment um everton!!!
þú ert grimmur maður, og hættu að skrifa um, hvað sem hann nú heitir, þátturinn sem þú varst að tala um...
sá hann ekki og er glaður...
er á móti svona sjálfsdýrkun, og að fólk skuli taka undir hann...
já, ég verð nú að taka undir það...hættu að tala illa um everton, mér líkar vel við þá!
Ég hef betri smekk en það... ég fer í konfektbúðina.... FÍFL!!!!!!!
Post a Comment
<< Home