Það skiptir ekki máli hvað þú segir.......
..... heldur hvernig þú segir það! Mér finnst það alltaf vera af hinu góða þegar nýir íslenskir sjónvarpsþættir birtast á sjónvarpsstöðvunum. Mér finnst það vera nauðsynlegt að hleypa reglulega nýju blóði inn á fjölmiðlamarkaðinn og leyfa eldri andlitum að setjast í helgan stein (heyri ég Hemmi Gunn og Vala Matt?). Með tilkomu ferskra, nýrra sjónvarpsstöðva hafa sprottið margir nýjir sjónvarpsþættir fram á sjónarsviðið.... sumir góðir en aðrir vondir. Það sem mér finnst slæmt um þessa íslensku sjónvarpsþætti er sérstaklega það að fólki virðist nánast vera hverjir fá þessa sjónvarpsþætti svo lengi sem þeir líta vel út í þeim. Nýjasta dæmið um þetta hugsunarleysi þeirra sem ráða sjónvarpsstöðvunum er Partý 101 sem er sýndur á Sirkus. Í þessum þætti á einhver gella að kenna íslenskum ungmennum að djamma og á hún að vera rosalega fær á því sviði. Ég ætla svo sem ekkert að drulla yfir þáttinn sjálfan (sem mér þótti by the way heimskulegur og hundleiðinlegur en það er kannski bara af því að ég stunda ekki ljós og vaxtarrækt) en það að setja hana til að stjórna þættinum er álíka gáfulegt og að ráða barnaníðing til að skemmta í afmælinu hjá barninu sínu. Þessi stelpa, sem er örugglega rosalega fín stelpa sem fer reglulega með bænirnar sínar og tekur til hjá ömmu sinni, á samt frekar heima á leikskóla heldur en á öldum ljósvakans. Hún virðist stundum eiga erfitt með að koma heilum setningum útúr sér án þess að segja “geðveikt” eða “e´þa? (lauslega þýtt: er að). Ég bjóst alveg eins við því að hún myndi taka upp á því að borða vaxlitina sína og síðan hlaupa með skæri. Inn á milli þess sem sýndar voru myndir af henni á djamminu að spyrja fólk hvort að væri ekki stemming á Hverfis (reikna með að þá sé átt við Hverfisbarinn) voru sýndar myndir af henni þar sem hún var að gera sig klára á djammið. Þar á meðal voru myndbrot af henni í baði sem hefði eflaust verið í lagi ef hún hefði bara haldið kjafti! En ég nenni ekki að tala meira um þennan þátt, ég missti algjörlega áhugann þegar gellan fór með einhverjum Fazmo gaurum út að borða og skipti um stöð. Á næstunni á svo líka að fara að sýna þætti með honum Gillzenegger sem eiga víst að vera í svipuðum stíl og síðan hjá Köllunum. Ég ætla að horfa á fyrsta þáttinn en ég býst ekki við miklu. Reyndar býst ég við almennum leiðindum og ætla því að hafa geðlyfin mín við höndina.
En þar sem að nánast allir sem hafa rétta útlitið geta fengið sjónvarpsþátt um þessar mundir vill ég koma með hugmynd. Ég vill safna saman liði til að gera sjónvarpsþátt, mér er alveg sama um hvað hann er svo lengi sem þetta er ekki enn einn djamm þátturinn. Ég hef nú þegar einn besta klipparann á landinu í sigtinu en það er því miður smá vandamál með þann gaur þar sem hann flutti til Danmerkur (Takk kærlega Gummi!!!!) Ég þekki manneskju sem ég er nokkuð viss um að gæti vel tekið upp þáttinn og eflaust klippt hann líka (bara spurning hvort sú manneskja vilji láta bendla sig við eitthvað svona fúsk). Það sem mig vantar núna er fólk með hugmyndir...... og meðan ég man... ég er EKKI að grínast! Ef að ég get safnað saman góðum hóp til að standa í þessu þá er ég reiðubúinn að leggja það á mig að umbreyta sjálfum mér til þess að selja þáttinn. Ó já... ég er að tala um að fara yfir til myrku hliðarinnar... ég mun fá mér strípur og ég mun stunda ljósabekki til að verða ógeðslega súkkulaðibrúnn. Þetta mun ég leggja á mig til að selja þáttinn, þar sem það virðist svo vera sem að þátturinn sjálfur muni ekki selja sig heldur bara fallegu umbúðirnar (eða í mínu tilviki sólbrúnu ljóshærðu umbúðirnar... ég hef ekki efni á lýtaraðgerð)
Þeir/þær sem hafa áhuga á þessu hafa annað hvort MSN-ið hjá mér eða netfangið þannig að það er hægt að láta mig vita þannig. Einnig er svo sem hægt að nota kommentin.
Hugsiði málið!!!!!


13 Comments:
Þú ert bara orðinn gamall... en ég skal vera með, ég hef samt ekkert upp á að bjóða nema mitt ofurfagra andlit.
við gætum auðvitað gert þátt í svipuðum stíl og sex inspectors og þá gætum við sýnt meira en ofurfagra fésið þitt!
úúúúúú! Ég skal klippa það! Ég hef enga hugmynd um hvað við ættum að gera...en fyrir góða hugmynd og sæmilega upphæð er alltaf hægt að lokka mig til Íslands tímabundið ;)
Gætum kannski endurskapað og auðvitað skrifaði(skáldað) í kringum okkar "gömlu" karaktera á Laugum?
"Nördar níðast á feitu fólki"...veit það ekki...
hehehehe.... heldurðu virkilega að ég ætli að borga þer krónu fyrir þetta??? Kannski fyrir leigu á klippigræjum en annars borga ég þér bara í blíðu!
Vitleysingur....þú þarft náttúrulega að selja einhverri sjónvarpstöð hugmyndina sem borgar okkur fúlgu fjár til að gera þetta!
en til þess að einhver borgi okkur mikinn aur fyrir þetta þá væri gott að vera með tilbúinn pilot.... annars ættir þú að þekkja þetta ferli manna best eftir að hafa verið að slæpast á Skjá Einum í mörg ár!
Maður þarf engann pilot ef maður er góður sölumaður ;)
Mér skilst að Viggó hafi einstaka söluhæfileika... ég hef heyrt því fleygt að hann vinni jafnvel við slíkt.
hver var að segja svoleiðis vitleysu.... ég vinn hjá Hjólkó í Kópavogi.... er djöfulli fær að umfelga!
I like it!
Ég elska hvernig þú hugsar Björgvin! Ef það væri ekki synd myndi ég dressa þig upp í kúrekaföt og fá þig svo með mér upp í fjöll þar sem við gætum smalað kindum og reynt að afneita samkynhneigð okkar!
Freyja. Eigum við að gifta okkur?
Freyja. Eigum við að gifta okkur?
Post a Comment
<< Home