DV.....
Núna loksins er fólk farið að fatta það sem ég er búinn að vera að segja í heilt ár.... DV er sori og á heima í ruslinu en ekki inni á heimilum landsmanna. Það hafa væntanlega allir tekið eftir því mannsmorði sem DV framdi í gær og ég segi bara... það hlaut að koma að þessu! Viku eftir viku tekur DV mannorð manna af lífi bara fyrir það eitt að vera grunaðir um eitthvað. Það er ekki lengur gamla góða prinsippið: "saklaus uns sekt er sönnuð" heldur er þetta núna "sekur uns sakleysi er sannað". Nú þekki ég þó nokkra sem hafa lent í skítkastinu hjá DV, sumir hafa átt það skilið og sumir hafa engan veginn átt það skilið. En spurningin er ekki hvort að fólk hafi átt þetta skilið heldur snýst málið um það hvort að DV sé með réttindi til þess að dæma fólk.
Það auðvitað segir sig sjálft að um leið og það er búið að birta mynd af þér á forsíðunni á DV og fyrirsögnin segir "Barnaníðingurinn sem leggur í fatlaðra stæði!" þá ertu basically búinn að vera. Getur líklega gleymt því að fá vinnu í leikskólum Kópavogs.
Núna gengur um á netinu undirskriftalisti til að mótmæla stefnu DV og hvet ég alla til að skrifa undir það plagg því maður veit aldrei hvenær smá misskilningur getur skilað manni á forsíðu DV.
Ég veit að ég vill amk ekki lenda þar!


7 Comments:
Ein spurning: Hefur undirskriftalisti á netinu einhverntíman hjálpað einhverjum eða komið í veg fyrir eitthvað?
man ekki eftir því að það hafi gert eitthvað en það getur ekki skemmt fyrir að fólk láti óánægju sína í ljós. Ritstjórar DV voru báðir í Kastljósinu og þeir gáfu það sterklega í skyn báðir að þeim væri alveg sama. Ef eitthvað gerist þá gerist það hjá eigendum blaðsins! Djöfull hata ég þetta blað!
Hef aldrei séð neinn rosalegan mun á þessu blaði sem þeir gefa nánast daglega út (DV) eða þessum slúðurblöðum sem kemur einu sinni í viku, jú pappírinn og "íþróttafréttirnar".
ég spyr bara, hver er ekki á móti stefnu DV???
Held að þú sért langt frá því að vera sá eini síðasta árið sem finnst þetta.
Fyrir mér er undirskriftalisti á netinu frekar ómerkilegur, en samt betra en ekkert.
Ég myndi segja að slúðurblöðin (væntanlega séð og heyrt og hitt þarna) séu skárri. Þau myndu aldrei setja sömu fyrirsögn framaná þeirra blað og DV gerði um daginn.
Ef ritstjórunum er alveg sama þá sé ég ekki alveg tilganginn í að vesenast í einhverjum undirskriftalista, hvort sem hann væri á netinu eða ekki. Þeir ætla ekki að breyta neinu og gera það ábyggilega ekki af þeirri einu augljósu ástæðu að fólk heldur áfram að kaupa þennan snepill. Er reyndar sammála þér að láta óánægju sína í ljós, sem oftast, if you ask me. Hver fékk annars þessa fyrirsögn? Sá hana ekki, einhver sem maður þekkir? Varst þetta þú?
sammála því, ef fólk vill mótmæla þá er bara að hætta að kaupa DV.
Held að einhverjir hausar fái að fjúka þá fljótlega, híhíhíh...
Fyrirsögnin var um einhentan kennara fyrir vestan, með mynd, blurruð held ég. Talinn hafa misnotað tvo drengi.
Gaurinn framdi síðan sjálfsmorð (fyrirsögnin hefur örugglega aðeins hjálpað þar til)
Kennara you say....ég ætla ekki að fara að alhæfa hérna frekar en annarstaðar, þar sem að pabbi er skólastjóri og mamma kennari, en kennarar eru margir hverjir býsna tæpir á því.
Man einhver eftir Bigga stærðfræði kennara á Laugum? Rak mig út úr tíma fyrir að þiggja tyggjó af örðum nemanda!! Ég hataði hann og hann hataði mig, ef mig langaði að koma fyrirsögn um hann á forsíðu DV gæti ég það eeeeeeen er sem betur fer ekki hálfviti....bíð frekar eftir að hann geri það við mig.....(ennþá að bíða)....
Post a Comment
<< Home