eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

7.1.06

Furðufuglar....

Ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað ég þekki mikið af "sérstöku" fólki. Ég hef kynnst mikið af furðulegu fólki á minni stuttu ævi og mér finnst ég alltaf vera að kynnast nýjum furðulegum einstaklingum. Sem dæmi um furðulegt fólk sem ég þekki þá er það hinn heimsfrægi Siggi Clinton. Siggi er u.þ.b. 60 ára gamall og síðast þegar ég vissi var hann að vinna hjá Kópavogsbæ. Hann hefur þá skemmtilegu áráttu að hann horfir á sjónvarpið og eignar sjálfum sér það sem hann sér í sjónvarpinu. T.d. var hann einu sinni í hljómsveit sem lenti í skelfilegu flugslysi í Andesfjöllunum. Í flugvélinni var brasilískt fótboltalið (heyrir einhver Alive???) ásamt þessari rosalegu hljómsveit hans Sigga. Allir lifðu flugslysið af en svo fóru menn að verða svangir og fóru þá að éta hvern annan. Siggi var einn af þeim fáu sem lifðu þessa miklu lífsreynslu af. Var ég búinn að minnast á það að Siggi er hálfbróðir hans Bill Clinton, ergo Siggi Clinton. Svona þegar ég spái í því þá eru nánast allir sem ég þekki furðulegir á einhvern hátt. Eða eins og mamma segir alltaf:"Þangað fer féð sem fé er fyrir!" Fyrir þá sem tala ekki bóndamál þá þýðir þetta:"Sækjast sér um líkir!"

5 Comments:

At 01:01, Anonymous Anonymous said...

Er Siggi Clinton code word fyrir mig? Ég sé sjálfa mig í þessari sögu... það er grunsamlega margt líkt með okkur.

 
At 01:34, Blogger V said...

Siggi Clinton er actual manneskja.. rúntar um í hvítum bíl merktum kópavogsbæ!

 
At 01:41, Blogger Gummi said...

Ég klæði mig sjálfur...

 
At 03:21, Blogger V said...

Gott hjá þér Gummi minn...

 
At 19:30, Blogger Gummi said...

ég veit...allavega þegar það heppnast!

 

Post a Comment

<< Home