No news is good news......
"Sjálfsmorðsárás í Jemen - enginn særðist!" Þetta er fyrirsögn sem heilsaði mér á föstudagsmorguninn á NFS. Í fyrstu var ég glaður yfir því að enginn hefði særst en svo fór ég að sjá að þetta gat ekki verið svo einfalt. Hvað með aumingja tilræðismanninn, telst hann ekki til þeirra sem særist í árásinni? Ok... gefum okkur það að hann hafði ekki særst og sé núna í heilu lagi heima hjá sér að éta döðlur, hvernig getur þetta þá verið "sjálfsmorðsárás"? Mér finnst einhvern veginn að það geti ekki verið sjálfsmorðsárás nema að tilræðismaðurinn deyji..... annars er þetta bara árás!
En ef að tilræðismanninum hefur tekist ætlunarverk sitt og líkamspartar hans eru núna dreifðir um allt Jemen, er þá ekki rangt að segja að enginn hefði særst. Hefði ekki verið nær að hafa fyrirsögnina: "sjálfsmorðsárás í Jemen - enginn særðist en tilræðismaðurinn lést" Þetta er svona svipaður stíll og þegar keyrt er á hross úti á þjóðvegi "enginn slys urðu á fólki en hrossið dó" Þetta myndi koma í veg fyrir allan misskilning... a.m.k. að minni hálfu.
in other news.... ég náði öllum prófunum mínum og er því bara ein önn þar til að ég get farið að titla mig sagnfræðing í símaskránni. Ég er bara að sjá það betur og betur að ég hefði átt að vanda betur valið þegar ég hóf mitt nám því ég er ekki að sjá það að þessi sagnfræðingstitill muni skila mér neinu af viti. Ef ég hefði hinsvegar verið klár og farið beint í verknám um leið og grunnskólanámi lauk þá væri ég hins vegar í mun betri málum. Segjum sem svo að ég hefði lært rafvirkjun eða smiðinn þá væri ég núna líklega mun betur launaður og væri búinn að vera laus við skólann í mörg ár. Þess í stað er ég að reyna að klára enn einn skólann og er á meðan skítblankur. Well this sucks......
Annars fór ég á djammið á laugardagskvöldið og kom þá einhver gella upp að mér og gaf mér fokk merki.... ég vissi ekki alveg hvað ég hefði gert til að verðskulda þetta en áður en ég gat spurt hana hvernig á þessu stæði var hún horfin út á dansgólfið á Pravda. Ég stóð þá eftir hissa og vissi ekkert hvað ég hefði verið að gera af mér.... og já.... ég grét mig í svefn þegar ég loksins kom heim til mín. Ég fer aldrei aftur á djammið, þar eru bara vondar konur sem senda manni puttann án þess að maður eigi það skilið!


8 Comments:
"Hvað með aumingja tilræðismanninn"...er ekki í lagi með þig?? Aumingja tilræðismaðurinn er ekkert meira en það: Aumingi!! og hananú!
Til hamingju samt með að hafa náð prófunum :)
láttu ekki svona... fordómar sæma þér ekki, tilræðismaðurinn vill vel, hann fer bara vitlaust að hlutunum. Svona eins og gaur sem dömpar konum í gegnum sms en gerir það blíðlega
hmmm... drekka frítt, hlusta á leiðinlega tónlist, reyna að finna út hverjir væru ekki á einhverjum ólöglegum efnum og að láta senda mér fokk merki
þú ert svo mikið partýdýr!!
Ég sagði henni að þú ættir það skilið. Áttirðu það ekki skilið? Ha? HA?!
úúúúúúúúúú I sense tension...
Heyrru, nú er ég allt í einu orðinn forvitinn. Ég hef það á tilfinningunni að Viggó hafi verið að gera eitthvað af sér og Freyja viti allt um það....mér finnst að Freyja eigi að segja okkur það, right now, right here!
Viggó gerir aldrei neitt af sér!!!! Viggó er bara aumkunarverður gamall kall.
Post a Comment
<< Home