Lengi lifi Frakkar!!!!!!!
Húrra fyrir Frökkum sem urðu í gær Evrópumeistarar í handbolta. Ekki það að ég hafi brennandi áhuga á handbolta en þessar elskur í franska landsliðinu voru að tryggja mér 3 kippur af bjór til að skola niður mesta biturleikanum af daglega lífinu.
Annars var bjórkvöld hjá vinnunni minni á föstudaginn og var bara nokkuð gaman þó svo að mæting hafi ekki verið eins góð og ég hefði viljað. Vantaði þarna nokkra aðila sem hefðu gert kvöldið ennþá skemmtilegra en það þýðir víst ekkert að grenja yfir því.
Annars var hún Inga mín elskuleg eins og alltaf og bjórinn var góður... eins og venjulega.


9 Comments:
segi það. Og er þetta vottur af mottu sem að ég sé þarna framan í þér?
Ég ét alveg nóg takk fyrir og þetta er ekki motta framan í mér... þetta er það sem ég kalla: "nenni-ekki-að-raka-mig-í-nokkra-daga" skegg
vá...eftir nokkra daga...og hvenær detta eistun svo niður? hahahaha
Er það þá svona sem þú vilt hafa þetta Gummi minn? Ég stend með þer í gegnum súrt og sætt, held hárinu frá andlitinu þínu þegar þú gubbar, huggaði þig þegar að kisan þín "datt" fram af svölunum og dó (reyndar henti ég henni en það er aukaatriði) og það er svona sem þú kýst að launa mér þetta allt. Hér með skrifa ég þig í svörtu bókina mína... þar sem þú kemst á blað með Múhammed spámanni, George Bush og Rob Zombie.
reyndar datt kisan mín niður af svölunum, hún lifði það af og þá fór ég með hana upp í sveit og lét gamla þjálfarinn minn skjóta hana í hausinn! Sem er það sama og kemur fyrir þig ef þú tekur mig ekki úr bókinni þinni!
Ég saknaði þín í dag... ertu að reyna að forðast þig því þú veist að ég heimta að þú komir að borða með mér? ...anorexía!!!!
ahhh.... það er svo erfitt að vera vinsæll.
Hey Viggó. Ég sá Freyju um daginn. Gleymdi bara að senda þér sms.
hehehehe.... það er alltaf gaman að sjá Freyju.
Post a Comment
<< Home