You can´t spell Slaughter......
... without Laughter. Ég lýsi því hér með yfir að þetta er eitt mesta sannleikskorn sem ég hef rekist á um ævina. Og hvar rakst ég á þetta? Hver er þessi miklu visku brunnur sem ég hef rekist á? TEIKNIMYNDIR.
Ójá... núna eins og oft áður eru teiknimyndir og bíómyndir uppspretta minnar visku. Þegar að teiknimynda persónu hlotnast sá heiður að vera valin heimspekingur 21. aldarinnar (Hómer Simpson í viðurkenndri könnun) þá er það greinilegt að ég er ekki sá eini sem fær alla sína speki frá furðulegustu fyrirbærum. Nýjasta æðið mitt eru hinir kolsvörtu þættir Drawn Together.
Í þessum þáttum er fjallað um allt frá þjóðarmorðum til samkynhneigðar, sjálfsfróunar til trúmála og basically allt milli himins og jarðar. Ég ætla ekkert að fara að lýsa þessum þáttum nánar, því ég hef gert það einu sinni og þá var bara hlegið að mér (Takk kærlega gömlu júragarðs félagar) en ég mæli eindregið með því að fólk kíki á þessa þætti ef þau geta.


6 Comments:
Það er nú ekkert að marka....ég hlæ að öllu sem þú segir :D
Ekki ég. Það er bara heimskt að hlæja.
segir leiðindastrumpur....
ég dánlódaði nú þessum drawn þætti og lenti einmitt á slaughter - laughter þættinum....kalt mat: Ég held ég hafi hlegið af einum brandara.
Annars algjört waist of time.
segir leiðindastrumpur....
ég dánlódaði nú þessum drawn þætti og lenti einmitt á slaughter - laughter þættinum....kalt mat: Ég held ég hafi hlegið að einum brandara.
Annars algjört waist of time.
Þú ert ekki marktækur í þessu máli Gummi minn. Þú fattar varla brandara nema að það sé talað um kúk í punchline-inu!
hehehehe....þú sagðir kúkur! aaaaaahahahahahahahahahaha!
Post a Comment
<< Home