eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

24.2.06

Draumadjobb......



Ójá... litli nördinn hann Viggó komst í feitt og fékk draumadjobbið sitt upp í hendurnar. Ég er nefnilega kominn í það yndislega starf að vera að fara að dæma tölvuleik fyrir Stúdentablaðið (eða hvað sem það heitir). Þeir sem þekkja mig vita að þetta er eitthvað sem mér mun ekki leiðast og því er ég hoppandi af gleði í dag. Þannig að ég sé fram á góða helgi, kominn með glænýjan leik í hendurnar sem ég mun spila út í gegn og reyna síðan að krota niður nokkrar setningar til að dæma leikinn. Og hvað fæ ég svo að launum.... jú ég fæ leikinn að eign og það er ekki slæmur díll.

því miður er þetta bara þetta einstakt tilfelli þannig að þetta er ekki fast gigg en ég mun engu að síður njóta þess út í ystu æsar.

Sem sagt helgin verður: BLACK (leikurinn)+BJÓR+SKJÁVARPI+GOTT HLJÓÐKERFI=Taumlaus skemmtun!

12 Comments:

At 18:50, Blogger Sveinsson said...

Hvernig reddaðirðu því?

 
At 00:41, Blogger V said...

Vinnufélagi minn náði að plögga þetta. Hann átti að gera þetta sjálfur en hafði bara ekki tíma svo að hann fól mér þetta. En honum er bara nær að vera að taka upp plötu... pffft... hvað getur maður svo sem grætt á tónlist?

 
At 00:50, Anonymous Anonymous said...

Eða skrifa bók... pfff!

 
At 12:35, Blogger Gummi said...

YOU LUCKY FUCK!!!!!!!!! ÉG HATA ÞIG!

 
At 10:20, Blogger V said...

ahhhh... þetta er víst sönnun fyrir því að draumar geti ræst. Kannski að ég fari aftur að spila í lottóinu?

 
At 14:13, Blogger Gummi said...

og hvernig er svo leikurinn?

 
At 02:06, Blogger V said...

Leikurinn er eins og Commando myndin, atriðið úr Matrix þar sem allt var skotið í tætlur og blautur draumur Charlton Hestons. Þetta er besti skotleikur sem ég hef á ævinni spilað!

 
At 10:07, Blogger Gummi said...

Ertu til í senda mér þitt eintak þegar þú ert búinn að spila hann?

 
At 08:48, Blogger V said...

Gummi= þú færð því miður ekki eintakið mitt.. en ég skal hinsvegar senda þér þitt eintak af Max Payne sem að ég held að ég sé ennþá með einhvers staðar. Sindri= Hinir kallarnir geta nú hitt mann (og gera það oftar en ekki) en ég er bara svo fær að ég slepp alltaf. Hef í framhaldinu ákveðið að hætta í vinnunni og skólanum og leggja fyrir mig nýtt starf.... nú er bara spurningin hvar ég fæ license to kill á þessum viðbjóðslega útnára sem kallast Ísland

 
At 09:27, Blogger Gummi said...

Paintball á íslandi....hættu nú þessari vitleysu og sendu mér leikinn!

 
At 09:53, Blogger V said...

Ég skal taka það fram í erfðaskránni minni að þú eigir að fá leikinn!

 
At 15:03, Blogger Gummi said...

oohh...þú ert svo dauður!

 

Post a Comment

<< Home