eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

8.3.06

Barna Perri......

Ég man þegar ég var ca. 10-11 ára gamall sveitastrákur í heimavistarskóla. Þá hafði ég ennþá sakleysi mitt og ég stóð í þeirri trú að heimurinn væri góður og fallegur. Við þennan tiltekna heimavistarskóla var einn kennari að störfum sem hlaut viðurnefnið "kryppi" vegna þess að hann var með kryppu og haltraði örlítið. Ég vildi kalla hann Quasimodo en hver hlustar á 10 ára vitleysing? En dag einn þegar Kryppi átti að mæta til kennnslu sást hann hvergi og fór þá fólk að velta fyrir sér hvað hefði orðið um kallinn. Þá kom það í ljós að kappinn hafði verið rekinn og uppsagnarfresturinn hefði verið ca. 5 mínútur. Kryppi kallinn hafði nefnilega tekið upp á því að bjóða einum nemanda í íbúðina sína og gaf honum þar áfengi í þeim tilgangi að fylla unglinginn svo að hann gæti fengið smá action. Nú er kannski einhver að velta fyrir sér afhverju ég er að rifja upp svona ljóta sögu úr fortíð minni og svarið er einfalt..... KARATE KID!

Ég var nefnilega að horfa á Karate Kid myndina síðasta sunnudagskvöld á skjá einum og ég sá að þessi mynd var eins og svo margar aðrar....mun betri í minningunni. En í þessari mynd var eitt atriði sem mér fannst soldið vafasamt. Aðalsöguhetjan (leikin af Ralph Macchio) kom um kvöld að heimsækja sensei-inn sinn (lærimeistari fyrir þá sem eru ekki sleipir í asísku) Mr. Miyagi. Þá var gamli fauskurinn orðinn pissfullur og hvað gerir gamli perrinn þá... jú hann gefur unglingnum áfengi og skipar honum að drekka!!! Og það sem ég er að spá.... hvað var Ralph Macchio að spá að forða sér ekki út. Það er mín skoðun að ef eldri maður fer að hella í þig áfengi þá vill hann ekki kenna þér karate heldur vill hann gera þig að tíkinni sinni!!!!!

9 Comments:

At 17:18, Blogger Gummi said...

Það er einmitt það sem að ég er alltaf að reyna að gera þegar ég býð þér með á fyllerí!

 
At 20:12, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir að deila þessu með okkur Viggó, þetta var falleg saga. Ég ætla alltaf að hafa þetta í huga.

 
At 21:08, Blogger V said...

En svo eru sumar myndir sem eru jafn mikil snilld núna og þær voru fyrir 10-15 árum síðan. T.d. Goonies sem er alltaf jafn góð. En Karate Kid og Commando eldast mjög illa

 
At 21:27, Anonymous Anonymous said...

Nú er ég fúl:( og líka smá reið.... takk fyrir að láta mig vita!!!

 
At 23:00, Blogger V said...

Bíddu... hvað gerði ég núna vitlaust?

 
At 13:41, Blogger Gummi said...

Hvað gerir þú ekki vitlaust? Furðulegt alveg að þú komist út úr húsi án þess að hafa sett sokkana á hendurnar!

 
At 19:09, Anonymous Anonymous said...

Er í sakleysi mínu að tékka á síðunni hans Gumma og hvað sé ég... "Viggó"... og ég bara vissi ekki neitt um þessa "fínu" bloggsíðu:(

 
At 21:50, Anonymous Anonymous said...

Hvar? HVAR? HVAAAAAAAAR??

 
At 09:30, Blogger V said...

Ahhh.... Goonies... það er yndisleg mynd... Tvíbbarnir gáfu mér hana í afmælisgjöf fyrir 2 árum síðan og hún ratar reglulega í spilarann minn. Meistara stykki sem eldist ótrúlega vel!

 

Post a Comment

<< Home