Heimsyfirráð eða dauði....
Einhvern tímann var sagt að það væri betra að drottna í helvíti heldur en að þjóna á himnum. Hvað ætli sá hinn sami hefði sagt um það að þjóna í helvíti??? A.m.k. finnst mér þessa stundina líf mitt vera frekar súrt og er ekki laust við að ég sé kominn með ógeð á þessu blessaða landi. Ég skil ekki fólk eins og systur mína sem heldur því fram að þessi helvítis klakaviðbjóður, sem við köllum Ísland, sé besta land í heimi. Ég myndi svo sem skilja þessa yfirlýsingu hennar ef hún væri slefandi vanviti en hún er í rauninni frekar klár og því er þessi yfirlýsing hennar að valda mér miklu hugarangri. Ég fór því að velta fyrir mér hvað í fjandanum er svona frábært við þetta land. Eftir að hafa velt því fyrir mér hvað það sé eiginlega sem geri þetta land svona merkilegt gafst ég upp og ákvað að halda áfram að afskrifa þetta land sem rassboru heimsbyggðarinnar. Því vill ég koma með eftirfarandi yfirlýsingu. Þessi listi sem ég setti fram á sínum tíma um hluti sem ég ætlaði að gera á þessu ári er hér með dæmdur ómerkur. Í staðinn fyrir hann kem ég með eitt markmið sem ég mun héðan í frá vinna í að ná. ÉG ÆTLA AÐ FLÝJA LAND og þá helst sem lengst í burtu. Áður fyrr hefði ég sagt að bara eitthvað annað land hefði nægt mér og hefði ég m.a.s. látið mér Danmörku nægja en núna hef ég séð að Danmörk er einfaldlega ekki nógu langt í burtu. Og þar að auki þekki ég of marga sem eru búsettir þar. Kannski að ég geri bara eins og Andrés Önd og flytji til Fjarskanistan eða Langtíburtistan. Nú þarf ég bara að gera upp við mig hverja ég ætla að kveðja áður en ég fer. Kannski að ég sæki bara um pólitískt hæli í Washington D.C., þar verð ég a.m.k. umkringdur fólki sem er álíka spes og ég. Farvel grimma samfélag og frostbitna fósturjörð!


7 Comments:
Komdu til danmerkur...með leikinn. Komdu til Odense, ég get lofað þér að ég verð eini maðurinn sem þú þekkir og ef þú færð þér bara íbúð hinumegin í bænum er ekki möguleiki á að ég nenni að heimsækja þig oftar en 2svar í mánuði...DK er alveg nógu langt í burtu finnst mér. Svo er líka skemmtilegt hér, maður veit aldrei hvort að maður sé inní byggingu sem verið er að fara að sprengja...spennandi!
Ég trúi ekki að þú sért að svíkja föðurland þitt... þú minnist ekki svo mikið sem einu orði á það í þessu bloggi... Galapagos!
Galapagos er vissulega altaf spennandi valkostur. Ég hef alltaf verið heitur fyrir skjaldbökum. Svona eftir á að hyggja er Danmörk ekki svo langt út úr myndinni.... fínt að geta skroppið heim af og til, bara svo að maður muni afhverju maður fór til að byrja með!
nákvæmlega! og svo þarf ég náttúrulega ekki að minnast á hvað bjórinn er ódýr hérna...en ég gerði það samt.
En hvað með Japan Maggi??? Er það ekki bara málið fyrir mann eins og mig??? Miðstöð nördamenningarinnar!
Ég ætla að segja þetta einu sinni enn...30 bjórar á 900 ísl. kr. case closed!
Sorry Gummi... bjórinn heillar (ásamt þínum töfrandi félagsskap) en Maggi hefur hitt mig í hjartastað með Manganu og Nördabúðunum..... ætli Sony vanti ekki testara fyrir Playstation 3?
Post a Comment
<< Home