Ég fór á árshátíð Kópavogsbæjar í gær og ég vil ekki ræða það frekar nema fyrir utan eitt atriði sem ég get ekki hætt að hugsa um. Þannig var að ég var eins og svo oft áður með tóbak í vörinni og þurfti að fara að losa mig við það þannig að ég trítlaði inn á salerni og stóð fyrir framan vaskinn og var að skola á mér kjaftinn til þess að tennurnar á mér myndu ekki líta út eins og blettatígur. Þá tók ég eftir því að maðurinn við hliðina á mér var búinn að vera óeðlilega lengi að skoða sjálfan sig í speglinum. Þannig að ég ákveð, þar sem ég beygi mig fram yfir vaskinn, að líta til hliðar og sjá hvað hann væri eiginlega að gera. Og hvað haldiði að hafi verið það sem ég sá, það sem gjörsamlega starði beint á móti mér.... jú tittlingurinn á honum. Það var maður sem var örugglega á aldur við pabba minn (og jafnvel eldri) að PISSA Í VASKINN VIÐ HLIÐINA Á MÉR! Hvernig í ósköpunum dettur fullorðnum karlmanni í hug að pissa í vask á almannafæri!!!!!! Það voru klósett gjörsamlega alls staðar en hann ákveður í "sakleysi" sínu að pissa í vaskinn??? Ég pissaði síðast í vask þegar ég var 8 ára gamall á heimavist og var of myrkfælinn til að þora á klósettið um miðja nótt en ég myndi aldrei láta mér detta það í hug nú til dags. Ég sver það, ég á seint eftir að jafna mig á þessu.
En svo að ég minnist á eitthvað aðeins jákvæðara þá fékk ég tölvupóst áðan frá Morgunblaðinu þar sem ég var boðaður í hæfnipróf einhvern tímann í næstu viku. Ég nefnilega prófaði að sækja um sumarvinnu þar sem blaðamaður, bara svona fyrir forvitnissakir. Ég verð að játa að ég er þó nokkuð stressaður þar sem þetta próf verður metið útfrá því hversu góð tök maður hefur á þremur lykiltungumálum, íslensku, ensku og dönsku. Ég kann ekki rassgat í dönsku og mér hefur verið bent á það undanfarið af henni Esther vinkonu minni að ég tala víst frekar vitlausa íslensku. Þess vegna verð ég að segja að það eru ansi fyrirferðarmikil fiðrildi í maganum mínum en það er ekkert sem smá kæruleysi mun ekki drepa niður.
friður út!
V


6 Comments:
Viggó minn, þú talar nú ekkert skelfilega íslensku. Það eru bara nokkrir "vill" og "mér langar" errorar sem þarf að komast fyrir.
Ef þetta gengur eitthvað illa þá slærðu líka bara um þig með nokkrum af stóóóóru orðunum sem þú kannt! ;)
og er allt annar klikkar þá hvái ég bara og set upp sakleysissvip!
Horfðu á DR1 eða 2... fín hjálp í dönsku þar.
Og hey.. ég var bara að fatta núna.. NAME í stafarugli er AMEN... klára ég!!
Ásta... þú komst upp um þig, núna vitum við að þú átt þér ekkert líf. Og Viggó... hvað eru allar þessar konur að gera hérna... ég hélt að ég væri eina konan í lífi þínu!
Hvernig væri að senda eitthvað af þessum konum yfir til mín? Þú átt nóg með þína og barn
Já ég frétti Magnús að þitt djobb í sumar að yrði að horfa á HM... ekki slæmt starf það. Daði... ég hef reynt að senda hverja dömuna á fætur annarri til þín en þær koma allar tilbaka með þau skilaboð frá þér að þær stæðust ekki samanburð við Vic Mackey og TOny Soprano. En ég vill óska henni Ástu vinkonu minni innilega til hamingju með þessa stórkostlegu uppgötvun sína á AMEN og NAME... ég var að fatta að USERNAME er AMENRESU í stafarugli. Skyndilega finnst mér ég vera klár!
Post a Comment
<< Home