Út vil ek.....
Jæja nú er þetta loksins að skella á. Eftir að hafa hangið á þessum blessaða klaka undanfarin ár er ég loksins að komast til útlanda. Ég fer á morgun til (morð)höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C. og verð þar í viku með nokkrum samnemum mínum og kennara. Þarna úti er ætlun okkar að skoða Washington Post, Library of Congress og ýmislega fleiri merkilega staði. Einnig er það áætlun mín að endurnýja aðeins fataskápinn minn því það verður að segjast eins og er að allar buxurnar mínar pössuðu mun betur þegar ég var 15 kg. þyngri.
En áður en ég fer út verð ég að ganga frá nokkrum smáatriðum, nánar tiltekið að detta í það með vinnufélögunum á árshátíð Símans sem verður haldin í kvöld í Egilshöll. Fyrir árshátíðina ætlum við að hittast nokkrir nördarnir úr vinnunni og sötra öl og spila Tiger Woods.... ekki slæm byrjun á góðu fylleríi.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en vill enda á þessari fínu mynd af Barða Frey í nýja fína bolnum sínum sem ég keypti fyrir hann (og var ekki nema rúman mánuð á leiðinni til landsins).


5 Comments:
Snilldarbolur. Have fun in DC og verslaðu nú eitthvað fallegt handa Gumma sínum!
Blátt Toblerone!!! Og nóg af því!
Og ekki gleyma mér:) Tobleroneið mitt á að vera hvítt:D
Það ætti frekar að standa á bolnum: "I drink because my daddy cries".
Nah.. smá djók, skemmtu þér vel.
hahaha, mér finnst það góður díll!
Post a Comment
<< Home