eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

22.4.06

Hjálp!!!

Fyrir nokkrum mánuðum síðan sá ég myndbrot á netinu sem mér fannst ógeðslega fyndið en ég spáði ekkert mikið í því sínum tíma... ég bara hló. Nú var ég að enda við að sjá þetta myndbrot aftur og ég komst að því að þetta myndbrot er úr bíómynd sem ég held að ég verði hreinlega að eignast. Því vil ég óska eftir aðstoð frá ykkur fáu sálum sem lesið þessa síðu, hjálpið mér að finna þessa bíómynd í DVD gæðum og þá mun eg vera ævinlega þakklátur. Ég vil helst ekki þurfa að kaupa þessa mynd, þannig að plís ekki benda mér á Amazon eða Ebay. Ef þið vitið um einhvern sem á þessa mynd megiði reyna að fá hana lánaða og ég mun síðan sjá um restina. Ef þið finnið þessa mynd á einhverri myndbandaleigunni þá megiði endilega láta mig vita af því.

Myndin sem ég er að leita að heitir: "Sex and Zen" og er þetta mjög svo undarleg blanda af erótík og kung fu. Þetta myndbrot sem kætti mig svo mikið er t.d. aðgengilegt hér. Ok... nú hugsa örugglega einhverjir að ég sé bara einhver dónakall (og það er að vissu leyti rétt) en ég verð bara að sjá þessa mynd.... þetta litla sem sést í þessu myndbroti er bara OF fyndið!

1 Comments:

At 20:58, Blogger Gummi said...

mininova.com

torrentspy.com

ef þú finnur hana þar ættir að geta séð hvort hún er í DVD gæðum og bara dánlódað henni....held ég.

 

Post a Comment

<< Home